Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Lína Rut hæðist að auglýsingum Play: „Skítt með hæfni, greind og eða persónuleika“

Málverk Línu Rutar er fyrir miðju en Lína Rut er fyrirsætan á myndini sem hún skeytti við.
Málverk Línu Rutar er fyrir miðju en Lína Rut er fyr­ir­sætan á mynd­ini sem hún skeytti við.

Lína Rut Wilberg hæð­ist að aug­lýs­ingum Play í nýlegri Facebook-færslu.

Lista­konan fjöl­hæfa, Lína Rut Wilberg skrif­aði Facebook-færslu sem vakið hefur verð­skuld­aða athygli en þar gagn­rýnir hún aug­lýs­ingar Play sem birt­ust á dög­unum, með kald­hæðn­ina að vopni. Í aug­lýs­ing­unum er not­ast við fák­lætt fólk og tví­ræðni, svipað og tíðk­að­ist á árum áður.

Lína Rut Wilberg

Lína Rut tekur þó sér­stak­lega fram í sam­tali við Mannlíf að hún sé ekki aðeins að gagn­rýna Play, heldur þessa þróun, að nota lík­amann til að selja vörur. Tekur hún einnig fram að hún fljúgi sjálf með Play og finn­ist fyr­ir­tækið sem slíkt fínt. Þess vegna sé svo sárt að sjá þessar aug­lýs­ingar. Aðspurð um ástæð­una fyrir því að hún ákvað að skrifa færsl­una, svar­aði Lína Rut: „Ég ákvað að skrifa status eftir að ég sá færslu um þetta frá mjög þekktum ein­stak­lingi sem hjólar í Drífu hjá Stíga­mótum. Þessi kona er nán­ast lögð í ein­elti þar sem hún dyrf­ist að hafa skoðun á þessu mál­efni og ráð­ist á útlit hennar. Börnin læra það sem fyrir þeim er haft“.

Færslan hefst á eft­ir­far­andi hátt:

„Let´s all play like Play. Við Play eigum það sam­eig­in­legt að vera nán­ast „broke“ með jöfnu milli­bili. Núna er ég „desperate“ bara verð að selja þótt ekki væri nema eitt lista­verk. Og ég er aldeilis heppin „I have my body to add“.“ Lína Rut birti svo mál­verk sem hún gerði en var búin að láta taka mynd af lík­ama sínum og skeita við mál­verkið, til að hæð­ast enn meira af aug­lýs­ing­unni.

Kald­hæðnin heldur áfram:

„Af hverju kennum við börn­unum okkar ekki að nota lík­ama sinn meira til að ota sínum tota, það sé besta leiðin til að kom­ast áfram í líf­inu? Að það sé óþarfi að vinna hörðum höndum að því að efla hæfi­leika sína og kom­ast áfram á eigin verð­leikum? Af hverju að leggja áherslu á öfl­uga og heið­ar­lega mark­aðs­setn­ingu þegar það er ein­fald­ara og mun ódýr­ara að skarta bara nöktum lík­ama til að fanga athygli? Að yfir­borðs­kenndar og staðl­aðar feg­urðarí­myndir sé málið, skítt með hæfni, greind og eða per­sónu­leika, skítt með innri feg­urð og kyn­þokk­ann sem kemur líka að innan?“

Að lokum beinir hún orðum sínum að þeim sem ráð­ist hafa á Drífu Snædal í athuga­semd­ar­kerf­unum eftir að hún gagn­rýndi aug­lýs­ing­arnar.

„Lít­il­lækkum konur sem dirfast að stíga fram og gagn­rýna „sak­leys­is­legar aug­lýs­ingar“ því þær vilja ekki þessa fram­tíð fyrir börnin sín. Látum þær fá það óþvegið, þær eru „bitrar, ljótar, feitar, án kyn­þokka, með sam­an­bitnar varir, án húmors, þær líta aldrei glaðan dag“ (tekið af kommenta­kerf­inu) Ýtum undir van­líðan unga fólks­ins okkar, sér­stak­lega ungum stúlkum, því vanda­málin eru ekki næg fyrir. Og ýtum undir víta­hring­inn, það þarf sífellt að ganga lengra til að hneyksla og fanga athygli. Kennum þeim líka að sam­fé­lags­leg ábyrgð skiptir engu máli, hugsum ein­ungis um okkar eigin hag. Og kennum þeim að kyn­þokki teng­ist ein­ungis útliti, ekki per­sónu­leika, sjálfs­trausti, ástríðu og umhyggju fyrir sjálfum sér og öðrum. So, dear people, would you buy more of my art if I advert­ised it like this?“

Birti Lína Rut síðan mynd af mál­verki sem hún gerði í til­efni aug­lýs­ing­ar­innar, sem má sjá hér fyrir neðan. Til gam­ans má geta þess að mál­verkið er til sölu.

Málverk Línu Rutar er fyrir miðju en Lína Rut er fyr­ir­sætan á mynd­ini sem hún skeytti við.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið