Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Grindvíkingum mun standa til boða að kaupa húsnæði sitt til baka

Skóla­hald og end­ur­kaup fast­eigna framundan

Næstu skref í endurreisn Grindavíkur
Næstu skref í end­ur­reisn Grinda­víkur nýtt áhættu­mat Mynd: Shutterstock

For­sendur fyrir var­an­legri búsetu og skóla­haldi í Grinda­vík eru nú taldar ásætt­an­legar, að því gefnu að örygg­is­ráð­staf­anir séu virkar. Þetta eru helstu nið­ur­stöður úr nýjum hluta end­ur­skoðas áhættu­mats fyrir bæinn sem rík­is­stjórnin fjall­aði um í gær og segir á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Með þessu breyt­ist fyrra mat stjórn­valda frá því í apríl og er nú stefnt að því að bjóða Grind­vík­ingum að kaupa íbúð­ar­hús­næði sitt í bænum til baka.

Nýja áhættu­matið bendir til þess að unnt sé að halda áhættu fyrir þá sem dvelja eða starfa í Grinda­vík innan sam­bæri­legra marka og í öðrum byggð­ar­lögum á Íslandi sem búa við langvar­andi nátt­úruvá. Í apríl síð­ast­liðnum var það mat rík­is­stjórn­ar­innar að ekki væru for­sendur til að hefja skóla­hald eða stuðla að auk­inni búsetu barna í bænum, en stjórn­völd telja þær for­sendur nú breyttar.

Ógnin áfram viðvarandi

Þrátt fyrir rýmri heim­ildir og jákvæð­ara mat er óviss­unni vegna nátt­úru­vár­innar ekki lokið. Í til­kynn­ingu stjórn­valda kemur fram að aðstæður í Grinda­vík séu áfram sér­stakar þar sem ógnin er við­var­andi allan sól­ar­hring­inn og allt árið um kring, allt þar til gos­lokum hefur verið lýst yfir. Áfram verður fylgst náið með þróun mála og þess gætt að vöktun, við­vör­un­ar­kerfi og rým­ing­ar­á­ætl­anir séu ávallt virkar. Rík­is­stjórnin leggur sér­staka áherslu á að hags­munir og vel­ferð barna séu í fyr­ir­rúmi við allar ákvarð­anir um búsetu og skóla­hald.

Undirbúa endurkaup fasteigna

Nið­ur­stöð­urnar munu nýt­ast Grinda­vík­urbæ, rík­inu og öðrum hags­muna­að­ilum sem grund­völlur að næstu skrefum við end­ur­reisn bæj­ar­ins. Liður í því er að hefja mark­visst og í áföngum und­ir­bún­ing að því að bjóða Grind­vík­ingum að kaupa aftur íbúð­ar­hús­næði í bænum, kjósi þeir það.

Vinnan við end­ur­skoðun áhættu­mats­ins hefur staðið yfir und­an­farna mán­uði þar sem fjöldi sér­fræð­inga, hag­að­ila og íbúa komu að borð­inu. Sjónum var sér­stak­lega beint að öryggi við dag­lega dvöl og hugs­an­lega rým­ingu, sam­felldu skóla­haldi og öryggi hús­næðis.

Vinnu við heild­stætt áhættu­mat verður haldið áfram og verður það end­ur­skoðað reglu­lega. Nið­ur­stöður þess hluta sem nú liggur fyrir verða kynntar nánar á íbúa­fundi í Grinda­vík í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp