Gæsluvarðhaldi yfir konu sem grunuð er um að hafa orðið karlmanni að bana í fjölbýlishúsi við Bátavog, hefur verið framlengt um tvær vikur, eða til 18. október.
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni hefur gæsluvarðhaldi yfir konu, 42 ára, verið framlengt til 18. október en það átti að renna út í dag. Konan er grunuð um manndráp en sambýlismaður hennar fannst látinn í íbúð sinni þann 21. september. Smáhundur fannst einnig látinn á vettvangi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir