Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Ungir íslenskir menn í skítugum nærbuxum í sundi: „Svitinn hefur lekið niður bakið í rassaskoruna“

Skítugar nærbuxur eru vandamál í íslenskum sundlaugum – Myndin er samsett
Skítugar nær­buxur eru vanda­mál í íslenskum sund­laugum – Myndin er sam­sett

Árni Jónsson, for­stöðu­maður Laug­ar­dals­laugar, segir skítugar nær­buxur vera vanda­mál í sund­laugum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Und­an­farin ár hefur borið á því að ungir menn hafi farið í sund í óhreinum nær­buxum undir sund- og stutt­buxum og fjall­aði Mannlíf um málið í júlí. Mikil umræða var í sumar um þetta hátt­erni á spjall­síð­unni Reddit þar sem ýmsar mögu­legar ástæður fyrir þessu voru ræddar. Ein­hverjir spjall­verjar veltu fyrir sér hvort um túrista væri að ræða en flestir virð­ast sam­mála um að Íslend­ingar séu aðal­söku­dólgarnir í þessum efnum.

„Þetta er menn­ing hjá ungum drengjum,“ sagði Árni Jónsson, for­stöðu­maður Laug­ar­dals­laugar, í sam­tali við Mannlíf. „Ég veit ekki hver yngsti ald­ur­inn er en þetta eru ungir drengir frá svona 14-15 upp í 25-27. Ég hef alveg rætt við drengi sem segj­ast vera í hreinum nær­buxum en þú þarft að vera í við­ur­kenndum fatn­aði sam­kvæmt reglu­gerð og nær­buxur eru ekki við­ur­kenndur sund­fatn­aður.“ 

„Ég hef verið að taka stöð­una á gæðum vatns­ins. Það er alveg heil­næmt, ennþá, vatnið en þetta hefur mjög slæm áhrif, mjög hratt, á heil­næmi vatns­ins. Við erum alltaf að benda á túristana og ég hef þá frekar viljað benda á það hvar grunn­vand­inn okkar heima fyrir liggur. Svo gengur „staffi“ illa að fá drengi til að fara eftir þessu,“ sagði Árni um áhrifin sem þetta hefur á vatnið.

En er vanda­málið bundið við höf­uð­borg­ar­svæðið?

„Þetta er suð­vest­ur­hornið veit ég. Ég reyndar held að eins og í stóru laug­unum eins og á Akureyri sé þetta alveg vanda­mál. Þetta er bara ein­hver bylgja. Þú lætur sjá í bux­una­streng­inn, hvort sem það heitir Calvin Klein eða eitt­hvað,“ sagði for­stöðu­mað­ur­inn. „Ég var í Úlf­arsár­dalnum og þá komu ein­hverjir sem eru að spila í utandeild­inni, þetta eru strákar 23, 24, 25 ára, þeir eru bara í nær­bux­unum í stutt­bux­unum. Beint í sturtu, skola aðeins ofan í nær­bux­urnar. Þarna er, eins og Snorri í Skála­túni hefur bent á, að með hverjum ein­stak­lingi sem fer ekki í sturtu sem fer ofan í laug­ina er gert ráð fyrir um 1,4 grömm af skít komi í laug­ina. Þú getur ímyndað þér hvað mik­ill skítur er að koma með hverjum dreng sem kemur beint af æfingu þar sem svit­inn hefur lekið niður bakið í rassa­skor­una, sem hreins­ast vel þarna í nær­bux­urnar, og svo hreinsa þeir nær­bux­urnar í heita pott­inum þar sem ég er að reyna baða mig,“ sagði Árni og við­ur­kennir að þetta sé erfitt vanda­mál til að glíma við.

„Stundum erum við pínu­lítið ráð­þrota en stundum erum við samt með ráð við ýmsu.“

„Þetta er umhugs­un­ar­efni, hvaðan kemur þetta?“ velti Árni fyrir sér í sam­tali við blaða­mann. „Ég pínu klóra mér í hausnum. Auðvitað er þetta grunn­ur­inn í sam­fé­lag­inu okkar, við erum ekki að taka á ákveðnum hlutum. Ég hef stundum bent á að þetta stundum fylgi hóp­í­þróttum. Ég ætla ekki að segja þetta séu ein­göngu þeir, ég sé þetta sér­stak­lega þaðan.“

„Svo er ég svo oft að heyra umræð­una hjá hinum almenna gest hjá okkar. „Þessir túristar, þessir túristar“,“ sagði Árni þegar hann var spurður út í þær vang­veltur sem voru á Reddit að þetta væru túristar. „Þeir eru ekki stóra áskorun okkar í dag. Mig langar svo að við náum að breyta okkar ungu drengjum í það að koma fram af kurt­eisi og virð­ingu. Þetta að mæta í nær­buxum í laug er van­virð­ing við alla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar