Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af nokkrum ökumönnum vegna umferðarlagabrota í gærkvöldi og í nótti og vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Einn ökumaður var stöðvaður eftir að hafa mælst á 140 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar. Málið var afgreitt á vettvangi.
Þá var ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekið gegn rauðu ljósi og annar fyrir að aka án ökuréttinda. Einnig hafði lögregla afskipti af ökumanni og farþega sem hvorugur var í öryggisbelti.
Þrír ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum. Tveir þeirra reyndust undir áhrifum áfengis en einn undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Auk þess var ökumaður stöðvaður sem reyndist bæði undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án ökuréttinda. Í þeim málum var farið eftir hefðbundnu ferli lögreglu.
Lögregla sinnti jafnframt almennu eftirliti og aðstoð.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir