Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Ragga nagli: „Góður svefn er mikilvægasta heilsuvenjan okkar“

Ragga Nagli er klínískur heilsusál­fræð­ingur og einka­þjálf­ari. Á Facebook heldur hún úti vin­sælli síðu þar sem hún birtir reglu­lega pistla um hreyf­ingu, matar­æði og fleira.

Ragga nagli Mynd / Rut Sigurðardóttir
Ragga nagli Mynd / Rut Sig­urð­ar­dóttir

Í nýjasta pistil sínum skrifar Ragga um mik­il­vægi svefns.

Góður svefn er mik­il­væg­asta heilsu­venjan okkar því hún setur tón­inn fyrir alla heilsu­hegðun.

Fyrir gott matar­æði, hreyf­ingu, félags­líf og and­lega vellíðan.

Svefninn hefur áhrif á horm­ónin Leptín og Ghrelin.
Þetta eru ekki tveir hobbitar úr Hringa­drótt­ins­sögu, heldur eru þetta horm­ónin sem stýra svengd og seddu.

Leptín sem er seddu­horm­ónið fer niður svo við þurfum að borða meira til að verða södd.
Ghrelin sem er svengd­ar­horm­ónið fer upp svo við erum svöng allan dag­inn.
Þannig að það er búið að svíkja okkur tvisvar.

Með að gera okkur urlandi hungruð allan dag­inn og leitum að æti eins og hor­aður kett­lingur í húsa­sundi.

En þrátt fyrir að úðað sé í grímuna, það er eins og að henda fjöður í Almanna­gjá því það er ansi djúpt á seddu­stig­inu.
Kepp­endur í pylsu­kapp­áti á fjórða­júlí hátíð í Mið­vestr­inu í Band­ríkj­unum eiga ekki roð í mat­ar­lyst­ina á vansvefta dögum.

Og það eru sko ekki kjúklingur og brokkolí og sell­erí með möndlu­smjöri sem rúlla niður vél­indað.
Ó nei Hósei…. Rann­sóknir sýna að þeir sem sofa í 6 tíma eða skemur borða 300-500 kcal meira af hlað­borði en þeir sem sváfu í hina guð­dóm­legu átta tíma. Sem hljómar ekki stór­kost­lega mikið en á einu ári þá eru það 110-200 þús­und auka hita­ein­ingar sem jafn­gilda 15-20 aukakílóum á skottið.

Og til að núa gömlu iðn­að­ar­salti í opið sárið þá fóru hinir vansvefta lóð­rétt í eft­ir­rétt­ina og ein­földu kol­vetnin og þaðan komu auka hita­ein­ing­arnar, á meðan hinir útsofnu borð­uðu meira af græn­meti og mögrum prótín­gjöfum.

Góður næt­ur­svefn auð­veldar fólki að halda sig við efnið í matar­æði því fram­heil­inn verður í bana­stuði til að taka ákvarð­anir sem eru þér og lík­am­anum í hag.

Rann­sóknir sýna jafn­framt 55% meira fitu­tap hjá þeim sem sofa 8-9 tíma borið saman við þá sem sofa í sex tíma eða skemur.

Ef mark­miðið er að bæta matar­æðið, huga að heils­unni og jafn­vel tálga auka­bólstrun af maga, rassi og lærum þá ætti svefn­inn að vera algjört for­gangs­at­riði í heilsu­hegðun.

Dúndraðu í þig @nowiceland magnesíum fyrir svefn­inn til að slaka á vöðva­lufs­unum, auka end­ur­heimt og dýpka svefn­inn.

Prófaðu líka að taka sveppi… HA?? Nei ekki þessa sem þú tínir á umferð­ar­eyjum og gerir allt mjúkt sem þú snertir.

Reishi og Cordyceps sveppir (Vegan búðin) róa mið­tauga­kerfið með að lækka stress, minnka bólgur og bæta ónæm­is­kerfið. Þeir eru slak­andi og gott að taka 1-2 klst fyrir svefn.

Svefn­rútína er fag­ur­yrði svefn­sér­fræð­inga yfir góðar og áhrifa­ríkar kvöld­venjur svo við nostrum sem best og lengst við Óla Lokbrá.

Við und­ir­búum lík­amann fyrir átökin í rækt­inni með upp­hitun. Teygjum og hristum skank­ana og sendum þannig skila­boð til mið­tauga­kerf­is­ins og vöðvanna.

Að sama skapi þurfum við að hita lík­amann upp fyrir svefn og senda honum skila­boð um að nú þurfi ró að fær­ast yfir mið­tauga­kerfið svo hann fari að losa út svefn­horm­ónið melatónin.

Facebooksíða Röggu nagla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto