Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Vörur með vernduðum vöruheitum fjarlægðar úr verslunum

Mat­væla­stofnun hefur beint til­mælum til nokk­urra mat­væla­fyr­ir­tækja að stöðva notkun vernd­aðra afurð­ar­heita á merk­ingum. Ástæðan er að vöru­heitin njóta alþjóð­legrar verndar sam­kvæmt milli­ríkja­samn­ingi.

Fyr­ir­tækin sem Mat­væla­stofnun hefur beint til­mælum að hafa brugð­ist við og lagt niður þessar merk­ingar. Þær ættu því að hverfa úr versl­unum von bráðar og íslensk nöfn koma í þeirra stað.

Um er að ræða heiti eins og „Feta-ostur“ og „Bayonne-skinka. FETA nýtur verndar sem skráð afurð­ar­heiti í Grikk­landi og BAYONNE nýtur verndar sem skráð afurð­ar­heiti í Frakk­landi.

Feta­ostur mun fá nafnið Sal­atostur Mynd / MS.is

Í fréttum í sumar kom fram að Mjólk­ur­sam­salan hófst strax handa í kjöl­far bréfs frá MAST við að gera breyt­ingar á vöru­merkjum og umbúðum umræddra vara. Þannig verður notkun á orð­unum „Feti“ og „Feta“ hætt, og þess í stað not­ast við orðin sal­atostur, veislu­ostur og ostakubbur. Umbúðir yrðu sömu þó heiti vör­unnar breyt­ist.

Af umhverf­is­sjón­ar­miðum óskaði MS eftir því við MAST að nota eldri umbúðir eins og kostur er þar til þær klár­ast.

Sjá einnig: Feta­ostur verður Sal­atostur – „Varan er ennþá sú sama“

Tilmæli samkvæmt samningi Evrópusambandsins

Tilmæli eru í sam­ræmi við gild­andi samn­ing milli Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins, Samn­ingur um vernd land­fræði­legra merk­inga land­bún­að­ar­af­urða og mat­væla, en hann tók gildi 1. maí 2016. Samn­ing­ur­inn byggir á lögum nr. 130/2014 um vernd afurð­ar­heita sem vísa til upp­runa, land­svæðis eða hefð­bund­innar sér­stöðu. Óheimilt er skv. samn­ingnum að nefna íslenska fram­leiðslu FETA og BAYONNE.

Sem dæmi um íslensk vernduð afurð­ar­heiti má nefna „íslenskt lamba­kjöt- Icelandic Lamb“ og „Íslensk lopa­peysa-Icelandic Lopa­peysa,“ sem skráð eru sem vernduð afurð­ar­heiti á Íslandi. Felur það í sér að vilji fyr­ir­tæki not­ast við þau heiti þá verður varan að upp­fylla skráða afurð­ar­lýs­ingu, lopa­peysan verður að vera prjónuð á Íslandi og lamba­kjötið að vera af íslensku sauðfé.

Ert þú með ábend­ingu um neyt­enda­mál? Sendu póst á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas