Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Jón Atli verðlaunaður

Fyrrum rektor Háskóla Íslands að standa sig vel

Það var Saibun Tjuatja, forseti GRSS, sem afhenti Jóni Atla viðurkenninguna á ráðstefnu alþjóðlegu samtakanna IEEE Geoscience and Remote Society
Það var Saibun Tjuatja, for­seti GRSS, sem afhenti Jóni Atla við­ur­kenn­ing­una á ráð­stefnu alþjóð­legu sam­tak­anna IEEE Geoscience and Remote Society Mynd: Háskóli Íslands

Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvu­verkfræði og fyrr­verandi rektor Háskóla Íslands, hefur hlotið Fawwaz Ulaby Distinguished Achievement Award, ein virtustu verðlaun alþjóð­legu samtak­anna IEEE Geoscience and Remote Sensing Society en Háskóli Ísland greinir frá þessu á vefsíðu sinni.

Jón Atli tók við verð­laununum á alþjóð­legu fjar­könnunar­ráðstefnunni IGARSS 2026 í Washington DC í Banda­ríkjunum fyrr í vikunni. Verð­launin eru veitt árlega einstaklingi sem hefur á ferli sínum lagt fram­úrskarandi skerf til þróunar tækni á sviði fjar­könnunar.

Við afhendinguna kom fram að Jón Atli hlyti viðurkenninguna fyrir einstakt framlag til framfara í mynstur- og mynd­greiningu og gagna­bræðslu innan fjar­könnunar.

Fjar­könnun felur meðal annars í sér söfnun og úrvinnslu stafrænna mynda frá gervi­tunglum, flugvélum og drónum. Aðferðirnar má nýta til að fylgjast með breytingum á náttúru og umhverfi, meðal annars gróðri, jöklum og hafi, auk þess að greina framvindu elds­umbrota.

Jón Atli hefur hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísinda­störf sín. Á síðasta ári var hann kjörinn í Bandarísku verkfræði­akademíuna, National Academy of Engineering. Árið 2020 hlaut hann jafnframt viðurkenningu GRSS fyrir framlag sitt til menntunar á sviði fjar­könnunar. Þá hefur hann átta ár í röð verið á lista Clarivate Analytics yfir áhrifamestu vísinda­menn heims.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni