Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Nærmynd af Magnúsi Kristni: „Mjög venjulegur strákur en fjörugur og uppátækjasamur“

Leitað er eftir Magnúsi Kristni Magnússyni. Mynd / skjáskot Facebook
Leitað er eftir Magnúsi Kristni Magn­ús­syni. Mynd / skjá­skot Facebook

Ekkert hefur spurt til Magnúsar Kristins Magn­ús­sonar frá því að hann skil­aði sér ekki í flug frá Dóminíska lýð­veld­inu þann 10. sept­em­ber síð­ast­liðnum. En hver er Magnús Kristinn?

Magnús fædd­ist árið 1987 og ólst upp í Ártúns­holt­inu í hópi systk­ina og margra vina. Að sögn Rann­veigar Karls­dóttur, systur Magnúsar, var hann „mjög venju­legur strákur en fjör­ugur og upp­á­tækja­samur“ er hann var krakki og ung­lingur. Þá hafði hann gíf­ur­legan áhuga á íþróttum og hreyf­ingu og sá áhugi hefur ekki minnkað í dag.

Afreksmaður í íþróttum

Á sínum yngri árum var hann í fót­bolta og hand­bolta hjá Fylki en að end­ingu valdi hann borð­tennis. Keppti hann fyrir hönd Víkings í fjöldi ára og varð þrí­gang Íslands­meist­ari í borð­tennis og var val­inn íþrótta­maður Víkings. Þá keppti hann nokkrum sinnum fyrir hönd Íslands á Smá­þjóða­leik­unum og ferð­að­ist vítt og breitt um heim­inn, bæði með lands­lið­inu og Víkingi. Und­an­farið hafa hlaup og hjól­reiðar átt hug hans allan og hefur hann meðal ann­ars tekið þátt í Íslands­bankamara­þon­inu.

Veikindin

Síðustu ár hefur Magnús unnið við raf­virkjun en und­an­farið hefur hann verið í veik­inda­leyfi, meðal ann­ars vegna brjóskloss. Fyrir nokkrum árum fór að bera á and­legum veik­indum hjá Magnúsi en hann fékk hjálp til að takast á við það og virt­ist í góðum bata en hann taldi sjálfur að fullum bata væri náð og jafn­vel ekki nauð­syn­legt að taka lyf. Á meðan heilsan var góð og allt lék í lyndi var Magnús í nokkur ár í sam­búð og á son og fóst­ur­son úr því sam­bandi sem honum þykir mjög vænt um. Hann hélt ágætu sam­bandi við þá og barns­móður sína, þegar heilsan leyfði.

„Heilt yfir og þegar allt er eðli­legt er Magnús mjög ljúfur náungi, góður vinur og bróðir, faðir og frændi sem vill fólk­inu sínu allt það besta,“ sagði Rannveig í sam­tali við Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar