Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Annar íbúi átti í deilum við Magnús degi fyrir morðið: „Þá finn ég högg á hnakkanum og vankast“

Fjórða vitnið – Nágranni sem Magnús átti í deilum við áður. Magnús vék úr réttar­salnum áður en vitnið kom inn í salinn.

„Ég kem heim daginn fyrir atburðinn. Er að labba inn heima og er að taka síðasta skrefið í stiganum og sé að hurðin er opin. Og fer inn og sé Magnús þar og bíð ég honum góðan daginn. Þá finn ég högg á hnakkanum og vankast og spyr hvað hann sé að pæla. Hann svarar mér ekki þá en ég ætla bara að ganga inn í íbúðina mína en hann meinar mér aðgang. Magnús hringir svo í lögregluna og segir að ég hafi ráðist á sig. Hann eltir mig svo út Barða­voginn. Þarna er ég mjög vankaður. Ég mundi ekki hvað hafði gerst . Ég hringdi í móður hans sem sagðist vera á sjúkra­húsi og að Magnús væri full­orðinn maður, hún gæti ekkert gert. Ég hringdi svo á lögregluna og svo í kærustuna sem var heima. Ég sé svo Magnús fyrir utan húsið gangandi í hringi. Lögreglan kemur og ræðir við Magnús en kærasta mín sagðist hafa heyrt Magnús segja að ég hafi ráðist á sig og troðið puttanum upp í munninn á honum. Lögreglan ræðir við mig í bílnum og segir mér hvernig svona fer fram. Svo ræðir lögreglan við mig heima og segir að Magnús sé orðinn rólegur og ætli að fara að sofa.“

Dómari spyr hvort hann hafi verið drukkinn, vitnið. „Ég var bláedrú“

„Um nóttina voru hrikaleg læti frá íbúð hans, eins og verið væri að færa fullt af húsgögnum. Svo fer ég upp á heilsgæslu daginn eftir til að fá vottorð. Þá tjái ég Gylfa líka um að Magnús hafi ráðist á mig. Og svo hringdi ég í móður mína, sem hefur verið í lögreglunni í langan tíma. Hún sagði að það eina sem hægt væri að gera væri að fá héraðs­lækni til að svipta Magnús sjálfræði og fjarlægja hann úr íbúðinni.“

„Á leiðinni heim aftur, á degi atviksins er vitnið í bíl með mömmu sinni. Þá sjá þau Magnús fyrir utan húsið sem var óvenjulegt, að degi til. Þar gengur hann fram og til baka í garðinum. Mamma læsti bílnum strax. Ég tók til dót heima því ég vildi bara fara eitthvað annað.“ Segist vitnið hafa fengið það ráð frá lögreglunni að besta leiðin í þessu væri að gista aðra nótt og hringja aftur í lögregluna ef eitthvað kæmi upp, fá fleiri dæmi um óæskilega hegðun Magnúsar. Sagðist vitnið ekki hafa getað hugsað sér að gista aðra nótt.

„Ég bað Gylfa að hafa eyrun opin ef hann heyri eitthvað frá Magnúsi og segi honum að ég ætli ekki að gista þarna um nóttina. Hann sagðist ætla að tala hann til en ég ráðlagði honum að gera það ekki.“

Dómari: Þú virðist lýsa ofsa­hræðslu?

Vitnið: „Já, ég var bara í áfalli. Á einu auga­bragði breyttist allt. Ég var farinn að skoða nýja leigu meira að segja. Fram að þessu voru samskiptin þau að ég hef orðið mjög var við hann. Það voru mikil læti í honum, hvort sem hann var að skella hurðum og fleira. ÉG man að ég ræddi tvisvar við hann. Fyrst þegar ég var nýfluttur inn. Þá talaði hann við mig með þeim hætti að mig grunaði að hann væri einhverfur. Hitt skiptið þá skellti hann hurðinni einn daginn og ég æsti mig og opnaði hurðina og spurði hvort það væri allt í lagi. Þetta er kannski ári áður en þetta gerðist. Hann svaraði „ég get spurt þig að því sama. Þú ert búinn að vera að fylgjast með mér.“ Ég fussaði bara og lokaði hurðinni. Ræddi svo við móður hans.“

Dómari: Varstu búinn að vera að fylgjast með honum?

„Nei en hann virtist hafa þær kenningar. Ég meina ekki að ég hafi haldið að hann væri með samsæris­kenningar, meira svona eins og hann hefði misskilið eitthvað. Eitt atriði: Ég kom og heilsa þeim báðum. Hann veitist að mér og grípur hér (og bendir á öxlina) og ég losaði mig. Mamma hans sá þetta og sagði honum að hann væri bara svona spenntur á sjá mig og það komi svona fram. Ég upplifði ekki ógn af þessu.“

Sækjandi: Spyr nánar út í samskipti þeirra
„Kærustu minni hafði verið tjáð að Magnús gerði ekki flugu mein, mamma hans sagði það.“

Gerðuð þið honum eitthvað á hans hlut?

„Ekki neitt.“

En voruð þið búin að færa mikið af húsgögnum eða eitthvað slíkt?

„Nei en ég man eftir einu. Ég var að spila tölvuleik og hann bankaði mjög laust á hurðina og spurði hvort ég gæti haft lægra í mér. Ég sagði að það væri ekkert mál en ég upplifði frekar eins og hann vildi bara eiga samskipti, ég var ekki með hátt.“ Sagðist vitnið ekki vita til þess að Magnús og Gylfi hefðu átt í deilum.

Verjandi: Varstu almennt búinn að ræða við Gylfa um að grípa inn í deiluna eða hjálpa þér?

„Nei.“

En miðað við skila­boðin á milli ykkar þennan dag virðist sem þið hafið rætt um Magnús áður.
„Kærasta mín hafði eitthvað rætt áður við Gylfa um hann.“

Lýsti vitnið að hann hafi síðar rætt við aðstand­endur Gylfa sem sögðu að hann hafi verið svona maður sem vildi hafa alla sátta, að allir séu vinir og vilji ganga í svona mál og leysa þau.

Dómari: Hefurðu verið að ræða við Magnús um vini þína sem hann gæti hafa heyrt það?

„Ég hef verið að hugsa þetta. Mér finnst það mjög ólíklegt, nema hann hafi verið að liggja á gluggunum hjá mér.“

Segist vitnið að þó að hann hafi haft samskipti við Magnús, hafi hann alveg orðið var við hann oftar. Hann hafi til dæmis gert dyraat einu sinni og eitthvað fleira slíkt en ekkert sem hann óttaðist. Hann hafi bara haldið að hann væri einhverfur eða eitthvað slíkt.

Dómarinn spurði hvort að óttinn hafi bara kviknað eftir að Magnús veittist að honum. Svaraði hann því játandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim