Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ungur maður braut gegn valdstjórninni

Héraðs­dómur Austur­lands tók málið fyrir

Héraðsdómur Austurlands
Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands Mynd: Helgi Gunnarsson

Héraðs­dómur Austur­lands hefur dæmt ónafn­greindan mann í 30 daga skilorðs­bundið fangelsi fyrir að hrækja í andlit lögreglu­manns sem var við skyldu­störf aðfara­nótt sunnudags árið 2023. Refsingin fellur niður að liðnu einu ári haldi maðurinn almennt skilorð.

Samkvæmt dómnum var maðurinn ákærður fyrir brot gegn vald­stjórn með því að hafa hrækt í andlit lögreglu­manns fyrir utan tiltekinn stað. Í upphafi neitaði hann sök þegar málið var þingfest í mars á þessu ári og var því stefnt að aðal­meðferð.

Skömmu áður en aðal­meðferð átti að fara fram breytti maðurinn hins vegar afstöðu sinni og játaði brotið skýlaust. Vegna játningarinnar var málið dæmt án aðal­meðferðar samkvæmt ákvæðum laga um meðferð sakamála.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að maðurinn var ungur þegar brotið var framið, nokkur tími væri liðinn frá atvikinu og tafir yrðu honum aðeins að takmörkuðu leyti kenndar. Þá lá ekki fyrir að lögreglu­maðurinn hefði orðið fyrir líkamlegum skaða vegna háttseminnar og maðurinn hefði að lokum gengist greiðlega við broti sínu.

Dómurinn taldi því hæfilegt að dæma manninn í 30 daga fangelsi en fresta fullnustu refsingarinnar. Hann þarf að halda almennt skilorð í eitt ár frá uppkvaðningu dómsins.

Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða 450.324 krónur í þóknun verjanda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim