Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Eigandi katt­ar­ins hafn­aði kröf­unum

Reykjavík
Reykja­vík Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Fyr­ir­tæki var heim­ilað að ganga að 990 þús­und króna trygg­ing­arfé konu og henni gert að greiða fyr­ir­tæk­inu eina milljón króna til við­bótar vegna skemmda á leigu­í­búð. Kæru­nefnd húsa­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu að katt­ar­úr­gangur hefði valdið var­an­legri lykt­ar­mengun í gól­f­efnum íbúð­ar­innar en úrskurð­ur­inn var birtur 27. októ­ber.

Málið sner­ist um íbúð sem konan tók á leigu hjá fyr­ir­tæk­inu í mars 2025. Við upp­haf leigu­tím­ans lagði hún fram 990 þús­und króna trygg­ing­arfé. Fyr­ir­tækið hélt því fram að þegar leigu­tím­anum lauk hefði komið í ljós veru­legt tjón á gól­f­efnum vegna kattar sem konan hafði haft leyfi til að halda í íbúð­inni.

Fyr­ir­tækið sagði íbúð­ina hafa angað af katta­hlandi og taldi nauð­syn­legt að skipta um gól­f­efni. Upp­haf­leg bótakrafa þess vegna tjóns nam 1.835.000 krónum. Auk þess krafð­ist fyr­ir­tækið 572.373 króna vegna tap­aðra leigu­tekna frá miðjum sept­em­ber til loka októ­ber 2025.

Konan hafn­aði kröf­unum og hélt meðal ann­ars fram að um eðli­legt slit hefði verið að ræða. Hún gerði jafn­framt athuga­semdir við úttekt á íbúð­inni, meðal ann­ars vegna þess að henni hefði verið til­kynnt um hana með aðeins tutt­ugu mín­útna fyr­ir­vara og henni ekki gef­inn raun­hæfur kostur á að vera við­stödd. Kæru­nefndin féllst á að ann­marki hefði verið á fram­kvæmd úttekt­ar­innar að þessu leyti.

Nefndin taldi hins vegar gögn máls­ins sýna að sterk katt­ar­hlands­lykt hefði verið í íbúð­inni eftir að leigu­tíma lauk. Í skýrslu úttekt­ar­að­ila kom fram að lyktin ætti upp­tök sín í par­k­eti og park­etlistum og að hefð­bundin hreinsun myndi ekki duga. Mælt var með því að parket, und­ir­lag og listar yrðu end­ur­nýjuð í allri íbúð­inni.

Kæru­nefndin tók fram að þótt leyfi hefði verið fyrir katt­ar­haldi yrði ekki fall­ist á að það teld­ist hefð­bundin notkun íbúðar að kött­ur­inn gerði þarfir sínar á gól­f­efnið. Konan hefði heldur ekki lagt fram gögn sem hnekktu mati úttekt­ar­að­il­ans.

Nið­ur­staðan varð því sú að fyr­ir­tæk­inu var heim­ilað að ganga að öllu trygg­ing­ar­fénu, 990 þús­und krónum. Konunni var jafn­framt gert að greiða fyr­ir­tæk­inu eina milljón króna í skaða­bætur, auk drátt­ar­vaxta frá 25. októ­ber 2025. Öðrum kröfum kon­unnar var hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum