Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Guðlaug klippir tannkremstúpurnar í tvennt – „Við Kalli gerum matseðil nokkra daga fram í tímann“

Guðlaug Jónsdóttir og Karl Kristján Ásgeirsson. Mynd af Facebook síðu Guðlaugar.
Guðlaug Jóns­dóttir og Karl Kristján Ásgeirs­son. Mynd af Facebook síðu Guð­laugar.

Neytandi vikunnar að þessu sinn heitir Guðlaug Jóns­dóttir. Guðlaug býr á Ísafirði með eigin­manni sínum, Karli Kristjáni Ásgeirs­syni, en synir þeirra búa í Reykjavík. Hún er matreiðslu­meistari að mennt, með kennslu­réttindi og starfar við heimilis­fræði­kennslu í Grunn­skólanum á Ísafirði. Árið 2012 kom út bók um mat og matar­menningu á Vestfjörðum. Bókin heitir Boðið vestur og er eftir þau hjón. Haustið 2021 gáfu þau sjálf út bókina Í huganum heim, en Guðlaug skrifaði hana. Í bókinni segir Guðlaug frá æskuárum sínum á Melum í Hrúta­firði. Í huganum heim var tilnefnd til Íslensku bókmennta­verð­launanna 2021 í flokki barna- og ungmenna­bóka.

Gerir þú verð­samanburð á vörum og þjónustu?

Já, ég geri það að einhverju leyti. En, eftir því sem árin færast yfir gerir maður ríkari kröfur til þess að verð og gæði haldist í hendur. Þetta á við bæði í sambandi við vörur og þjónustu. Í dag getur maður frekar leyft sér að kaupa það sem er vandaðra. Ég er mjög löt við að fara búð úr búð til að bera saman verð og fagna því mjög tilkomu internetsins þar sem í flestum tilfellum er hægt er að kalla fram upplýsingar um verð á vörum og þjónustu á örskots­stundu.

Hvernig sparar þú í matar­innkaupum?

Við Kalli, maðurinn minn, gerum oftast matseðil nokkra daga fram í tímann og förum eina svona aðalferð í viku í Bónus. Við höfum minnkað kjöt­neyslu nokkuð og þótt það sé aðallega gert fyrir heilsuna er það sparnaður í leiðinni. Ég er sannfærð um að þetta fyrir­komulag við innkaupin hjálpar til við sparnað, það eru auðvitað mun meiri líkur á því að ýmiss óþarfi detti í körfuna ef fólk er jafnvel að fara á hverjum degi í búð, tala nú ekki um ef það er með tóman maga. Ég rækta mikið af grænmeti, salati og krydd­jurtum. Við erum því sjálfbær að nokkru leiti hluta ársins, sérstak­lega eftir að við fengum okkur gróðurhús núna fyrir tveimur árum. Fyrir utan alla gleðina sem ræktunin veitir er hún auðvitað líka að skila heil­miklum sparnaði.

Endur­nýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já, ég endurnýti ýmislegt. Ef ég horfi til fyrstu búskapar­áranna, þegar fjárráð voru afar knöpp, sé ég fyrir mér stór­rósótta sófa­settið sem við keyptum notað og dugði okkur fyrstu árin. Svakalegasta dæmið var auðvitað ermalausi, rósótti kjóllinn sem ég dró upp úr illa þefjandi hrúgunni í dósa­söfnun um árið. Kjólinn notaði ég óspart í nokkur ár, þó aðeins heima við! Reyndar er þetta stór­merkilegt því ég hef prófað nokkrum sinnum að kaupa notuð föt en gengur afar illa að nota þau. Ég skammast mín svolítið fyrir þetta og dáist að fólki sem hefur þennan lífsstíl og sem betur fer fjölgar því hratt. Ég nýti allskonar plast­dósir sem falla til við ræktunina, bæði hér heima og í skólanum. Sama plast­pokann nota ég oft nokkrum sinnum og nýti poka sem falla til. Annars er plastpoka­notkunin auðvitað orðin mun minni en var. Ég get verið hálf manísk á sumum sviðum og verð stundum aðhláturs­efni samferðar­fólks. Ég klippi til dæmis tannkrems­túpurnar í tvennt og get þannig látið þær duga nokkrum dögum lengur. Sama geri ég við öll krem í plast­túpum, það er ótrúlegt hversu margir skammtar sitja eftir þegar þær hafa verið kreistar. Pítsu­plastbrúsa saga ég oft í sundur og næ þannig að nýta alla sósuna. Nú er ég kannski komin út fyrir efni spurningarinnar! Í starfi mínu sem heimilis­fræði­kennari er mikið komið inn á flesta þætti sjálfbærni og er endur­nýting einn þátturinn. Börnin læra til dæmis að búa til ný kerti úr gömlum kerta­stubbum og við klippum niður gamlar sokka­buxur og notum sem teygjur í hárið. Ég legg líka mjög mikið upp úr því að kenna þeim góða nýtingu á öllu hráefni.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Þegar ég kaupi inn fyrir heila viku í einu þarf ég auðvitað að passa upp á síðasta söludag á viðkvæmum vörum, útlitið á grænmetinu og ávöxtunum og slíkt. Ég kaupi alltaf mjólkur­vörur frá Örnu í Bolungarvík. Bæði er það vegna gæðanna en einnig vil ég styðja við matvöru­framleiðslu á svæðinu. Fiskinn kaupi ég að sjálfsögðu hjá honum Kára í Sjávar­fangi. Ég kaupi mér ekki mikið af fötum en viðurkenni fúslega að mér finnst gaman að eignast nýja, fallega flík. Ég reyni að vanda valið og er hætt að kaupa flíkur bara vegna þess að þær eru svo ódýrar. Ég man ófá dæmi um slíka kaup­hegðun og nota þau óspart til að fræða nemendur mína. Mér finnst skemmtilegast að gefa eitthvað matarkynns, eitthvað sem ég hef bakað, eldað eða búið til. Ég er orðin mun kröfu­harðari í sambandi við gjafir sem ég gef. Þá á ég ekki við að gjöfin þurfi að kosta svo og svo mikið heldur það að hún nýtist sem best, veki gleði og komi að notum. Hvað er betra en gleðja fólk í gegnum munn og maga?

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Súkkulaði. Hef ánetjast dökku súkkulaði og er reyndar ekkert á þeim buxunum að draga úr neyslunni enda er hún sjálfsagt ekkert á neitt svimandi háu stigi. Annars dettur mér helst í hug allt plastið. Það er ótrúlega erfitt að reyna að sneiða hjá vörum í plasti og manni blöskrar allt það magn sem kemur frá tveggja manna heimili.

Skiptir umhverfis­vernd þig máli?

Já, hún skiptir mig máli. Auðvitað er hver einstaklingur eins og agnarsmár maur og skiptir litlu í heildar­samhenginu, sérstak­lega ef við miðum við risa­stórar eiturs­púandi verksmiðjur, útblásturinn frá flug­umferðinni á heimsvísu, plastið í hafinu og aðra slíka stóra þætti. Ég held samt og veit að hvert lítið skref sem hver einstaklingur tekur í átt til meiri sjálfbærni hefur áhrif til góðs. Við þurfum að fræða börnin og fara á undan með góðu fordæmi.

Annað sem þú vilt taka fram?

Í gamla daga skammaðist ég mín hálf­partinn fyrir mömmu þegar hún skolaði plast­pokana og hengdi þá upp til þerris. Mér fannst systir mín líka ægilega púkaleg þegar hún tók með sér tuðrur í matvöru­búðina. Nú geri ég hvorutveggja sjálf og er stolt af mömmu minni heitinni og systur. Ég flokka samvisku­samlega þó maður viti ekki alltaf hverju það breytir. Auðvitað er aðal­atriðið að kaupa minna –  kaupa minna drasl! Kaupa bara það sem maður virkilega þarf, hamingjan verður víst ekki fengin með því að sanka að sér dauðum hlutum.

Hér fylgir með uppskrift að fiskibollum úr bókinni Boðið vestur. Fjöldi fólks hefur haft samband og dásamað bollurnar! Aðal­atriðið er að vera með glænýjan og ferskan fisk, ýsu eða þorsk. Í uppskriftinni er talað um fiskhakk. Sjálf geri ég alltaf bollurnar í matvinnsluvél. Mauka vel saman fisk, lauk og eggja­hvítur og bæti síðan öðru hráefni við.

Fiskibollur – gamall og góður hversdags­matur

800 g ýsuhakk
stór laukur, saxaður fínt
eggja­hvítur
4 msk. hveiti
4 msk. kartöflu­mjöl
2 tsk. arómat
½ tsk. salt
1/8 tsk. pipar
matarolía eða smjör/smjörlíki til steikingar.

Setjið hakkaða ýsuna ásamt lauk og eggja­hvítu í hrærivélar­skál eða góðan blandara og þeytið saman í svolitla stund. Bætið út í hveiti, kartöflu­mjöli, arómati, salti og pipar.

Hitið olíu og/eða smjör/smjörlíki á pönnu og steikið bollurnar þar til þær hafa náð fallegum lit. Bakið í ofni á 130°C í 10-15 mínútur.

Með bollunum er tilvalið að hafa kartöflur og brúna lauksósu. Skerið heilan lauk niður í skífur og steikið í potti upp úr olíu og smjöri. Kryddið með salti og pipar. Bætið svolitlu hveiti út í pottinn og leyfið því að ristast aðeins með. Bætið köldu vatni í litlum skömmtum út í og hrærið vel á milli. Kryddið til með krafti, salti og pipar. Sósuna má einnig þykkja á annan hátt. Karrísósa og hrísgrjón koma einnig vel til greina. Okkur finnst einnig nauðsynlegt að hafa gott salat með eplum með fiskibollunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim