Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpa­mann­anna hafði saka­feril að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað

ELKO
ELKO Annar mann­anna var sak­felldur fyrir þjófnað úr ELKO í Skeif­unni, auk þjófn­að­ar­brota í öðrum versl­unum. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Tveir menn voru dæmdir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í síð­ustu viku fyrir þjófn­að­ar­brot sem framin voru í Reykja­vík og Kópavogi. Annar mann­anna var jafn­framt sak­felldur fyrir umferð­ar­laga­brot.

Menn­irnir voru meðal ann­ars sak­felldir fyrir að hafa stolið vörum úr versl­unum Bónus, Krón­unnar og Kids Coolshop. Verðmæti þýf­is­ins var mis­mikið en í umfangs­mesta ein­staka þjófn­að­inum var um að ræða vöru að verð­mæti tæp­lega 170 þús­und krónur úr Kids Coolshop á Smára­torgi í Kópavogi.

Annar mann­anna var einnig sak­felldur fyrir þjófnað úr Bónus í Holta­görðum og ELKO í Skeif­unni, auk þjófn­aðar úr Krónunni í Jafn­a­seli. Hann var jafn­framt sak­felldur fyrir að hafa ekið bif­reið sviptur öku­rétt­indum og undir áhrifum ávana og fíkni­efna. Oxýkódon mæld­ist í blóði hans þegar lög­regla stöðv­aði akstur hans í Reykja­vík.

Báðir menn­irnir ját­uðu brot sín eftir að ákæru­valdið gerði breyt­ingar á ákærunni. Dómurinn taldi sannað með játn­ingum þeirra og rann­sókn­ar­gögnum að þeir hefðu gerst sekir um hátt­sem­ina.

Sá sem hlaut þyngri dóm­inn átti nokkurn saka­feril að baki. Dómurinn taldi brotin sýna ein­beittan brota­vilja og skeyt­ing­ar­leysi gagn­vart eigum ann­arra. Hann var dæmdur í þriggja mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi og sviptur öku­rétti í þrjú ár.

Hinn mað­ur­inn var dæmdur í 45 daga fang­elsi fyrir þrjú þjófn­að­ar­brot. Refsing hans var skil­orðs­bundin til tveggja ára. Við ákvörðun refs­ingar var meðal ann­ars litið til ský­lausrar játn­ingar hans og þess að hann hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas