Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Þess vegna getur Arna í Bolungarvík ekki keypt duft í sína framleiðslu án þess að kaupa það af MS“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, þingmaður og formaður Viðreisnar, skrifaði grein sem ber yfir­skriftina: Einokunar­lausir páskar 2024.

Þar segir hún:

„Það fylgir því sérstök blanda af undrun með vott af skelfingu að borga fyrir mat á Íslandi. Verndar­tollar eru hærri hér en í þeim löndum sem við berum okkur saman við, sem aftur veldur því að matar­karfan hér er dýrari en annars staðar. Með verndar­tollum komast fyrirtæki eins og Mjólkur­samsalan í einokunar­stöðu þar sem innflutt mjólkur- og undanrennu­duft, sem notað er í alls konar matvæla­framleiðslu, verður margfalt dýrara. Til viðbótar hefur fyrir­tækið sérstaka undanþágu frá almennum samkeppnis­reglum; hentug­leikar sem öðrum atvinnu­rekendum býðst reyndar ekki.“

Bætir við:

„Þess vegna getur fyrirtæki eins og Arna í Bolungarvík, sem er keppinautur MS, ekki keypt mjólkur- og undanrennu­duft í sína fram­leiðslu án þess að kaupa það af MS. Og það á hærra verði en heims­markaðsverð vörunnar er almennt. Þessu háa verði er svo fleytt út í verðlag sem aftur bitnar á almenningi. Þetta þarf ekki að vera svona. Það er pólitísk ákvörðun og mannanna verk að sitja sem fastast í mein­gölluðu kerfi.“

Hún segir að „ástæðan var því ærin þegar fulltrúar verslunar­manna og launa­fólks gengu á fund fjármála­ráðherra og matvæla­ráðherra á dögunum og fóru fram á að tollar á tilteknar afurðir yrðu felldir niður sem viðbragð við verðbólgu sem gefið hefur góða raun td á Spáni. Nægilega hefur matar­karfan hækkað í verði undan­farin misseri. Á fundinum var lagt til að tollar á alifugla, svínakjöt, franskar kartöflur auk tolla á mjólkur- og undanrennu­duft og smjör yrðu afnumdir. Þá var lagt til að tollar á túlípönum og rósum yrðu felldir niður á því tímabili sem innlend fram­leiðsla annar ekki eftir­spurn – eins og um páska. Áhrifin yrðu skjótvirk og myndi þar að auki styrkja samkeppnis­grunn atvinnu­lífsins öllum til heilla.“

Þorgerður segir að „viðbrögðin voru dræm. Í nýlegri fjármála­áætlun til fimm ára er hvergi minnst á breytingar á tollum og lítið gert til að efla samkeppni hér. Frekar boðið upp á framhald saman­súrraðrar íhalds­mennsku og kunnugleg stef. Viðkvæðið um að launafólk, atvinnulíf og Seðla­banki eigi saman að vinna bug á verðbólgu, en að ríkis­fjármálin séu undan­skilin á því ferðalagi. En það koma páskar eftir þessa páska. Kannski verða næstu páskar upphaf þess að við lokum einokunar­hringnum og kveðjum í eitt skipti fyrir öll úr sér gengna tolla sem bitna helst á fólki sem gerir sér það eitt til saka að versla í matinn. Það má alltaf halda í vonina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim