Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Jón er látinn

Jón Sigurpálsson.
Jón Sig­ur­páls­son. Mynd: Aðsend

Jón Sig­ur­páls­son mynd­list­ar­maður og menn­ing­ar­frum­kvöð­ull á Ísafirði er lát­inn, 68 ára að aldri. Aðstand­endur hans sendu til­kynn­ingu um and­látið.

Jón fædd­ist í Reykja­vík 2. ágúst 1954. Hann stund­aði nám við Mynd­list­ar­skóla Reykja­víkur og Mynd­listar- og hand­íða­skóla Íslands áður en hann hélt til Hollands árið 1978. Þar stund­aði hann mynd­list­ar­nám við De Vrije Academie í Haag og í Rijk­saka­demie van Beeldende Kunsten í Amster­dam.

Jón varð safna­stjóri Byggða­safns Vest­fjarða og Lista­safns Ísa­fjarðar árið 1984. Hann byggði upp Byggða­safnið í Neðsta­kaup­stað á Ísafirði, eina heil­leg­ustu sam­stæðu húsa frá 18. öld á Íslandi, og hafði umsjón með hús­unum þar. Hann hafði for­göngu um að Edin­borg­ar­húsið á Ísafirði yrði gert upp og hafið til vegs og virð­ingar á nýjan leik sem Menn­ing­ar­hús Ísa­fjarðar. Hann var einn af stofn­endum gall­er­ís­ins Slunk­a­ríkis og end­ur­byggði hið forn­fræga kúabú Vil­mundar Jóns­sonar land­læknis í Tungudal, þar sem hann bjó til dauða­dags. Jón beitti sér fyrir ýmsum upp­bygg­ing­ar­verk­efnum á Vest­fjörðum, til dæmis í Ósvör í Bol­ung­ar­vík, Hrafns­eyri við Arn­ar­fjörð og Litla-Bæ í Skötu­firði. Þá barð­ist hann fyrir því að fyrsta varð­skip Íslend­inga, María Júlía, yrði varð­veitt, og var einn af for­svars­mönnum Holl­vina­fé­lags­ins Maríu Júlíu.

Þótt Jón hefði ærinn starfa við safna­stjórn stund­aði hann ávallt list sína með­fram starf­inu, ekki síst við gerð skúlp­t­úra. Hann hélt fjölda sýn­inga bæði hér heima og erlendis og má sjá verk hans víða um landið og erlendis. Hann sat í stjórn Mynd­höggv­ara­fé­lags Reykja­víkur og í stjórn Mynd­list­ar­fé­lags Ísa­fjarðar alla tíð. Hann var bæj­ar­lista­maður Ísa­fjarðar, hlaut við­ur­kenn­ingu Sambands ísl. sjó­minja­safna 2016 og var kjör­inn heið­urs­fé­lagi í Félagi ísl. safna og safna­manna 2021. Þá er ógetið tón­list­ar­á­huga hans, en hann lærði um skeið á kontra­bassa sem kom sér vel þegar vina­hóp­ur­inn stofn­aði hljóm­sveit­ina Diabolus in Musica.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Jóns er Margrét Gunn­ars­dóttir, píanó­leik­ari. Börn þeirra, Gunnar og Rannveig, eru bæði mynd­list­ar­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas