Kona, grunuð um að tengjast andláti karlmanns um helgina, var í gær úrskurðuð í gæsluvarðhald til 27. september.
Kona um fertugt var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í gæsluvarðhald til 27. september á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á sextugsaldri í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni um helgina, en konan var handtekin á vettvangi. Kemur þetta fram í tilkynningu lögreglunnar.
Tilkynning um málið barst lögreglu á laugardagskvöld og hélt hún þegar á staðinn og hóf þar endurlífgunartilraunir á manninum. Hann var í framhaldinu fluttur á Landspítalann, en var úrskurðaður þar látinn.
Ekki getur lögreglan veitt frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir