Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Kristinn um „ofsóknirnar“ á hendur Assange: „Hvað gera leiðtogarnir í Reykjavík?“

Julian Assange hefur mátt dúsa í Belmarsh-fangelsinu í London síðan árið 2019.
Julian Assange hefur mátt dúsa í Belmarsh-fang­els­inu í London síðan árið 2019. Mynd: Trausti Hafsteinsson

„Guðni for­seti ávarp­aði þing­menn Evr­ópu­ráðs­ins í lið­inni viku í Strass­borg en eins og kunn­ugt er verður leið­toga­fundur ráðs­ins í Reykja­vík 16.-17. maí n.k. For­set­inn svar­aði líka spurn­ingum og spurði þýski þing­mað­ur­inn Andrej Hunko for­set­ann hvað leið­toga­fund­ur­inn myndi gera í mál­efnum Julian Assange sem hefur núna verið í rúm fjögur ár í fang­elsi í Bret­landi að berj­ast gegn fram­sali til Banda­ríkj­anna þar sem hans bíður lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir að sinna blaða­mennsku.“ Svona byrjar færsla Kristins Hrafns­sonar rit­stjóra Wikileaks á Facebook. Þar veltir hann fyrir sér hvort leið­tog­arnir sem mæta á leið­toga­fund­inn í næstu viku, muni beita sér í máli Julian Assange, sem nú bíður í bresku fang­elsi eftir fram­sali til Banda­ríkj­anna fyrir að birta leyni­legar upp­lýs­ingar og mynd­skeið frá banda­ríska hernum.

„Forseti Íslands minnti á það í svari sínu að Ísland væri öfl­ugur málsvari frjálsrar fjöl­miðl­unnar og frelsi blaða­manna og myndi vera það áfram. Varðandi ein­stakar aðgerðir vís­aði hann á íslenska utan­rík­is­ráð­herr­ann sem var í salnum. Guðni minnt­ist á fund sem við áttum á liðnu hausti sem var von­andi upp­lýsandi fyrir for­set­ann,“ hélt Kristinn áfram.

Því næst spurði Kristinn: „Eftir stendur spurn­ingin, hvað ætla póli­tískir leið­togar Evrópu að segja á fund­inum eftir rúman hálfan mánuð um mál­efni Julians?“

Rit­stjór­inn hvít­hærði sagði einnig í færsl­unni að ofsókn­irnar gegn Assange snú­ist um mun stærri hags­muni en eins manns.

„Ég minni á enn og aftur að ofsókn­irnar gegn honum, þó að þær séu ský­laust mann­rétt­inda­brot, snúa að miklu stærri hags­munum en varða einn ein­stak­ling. Í þeim felst yfir­gengi­leg til­raun heims­veld­is­ins til að gera blaða­mennsku að glæp með því að beita í fyrsta sinn yfir 100 ára gam­alli njósn­a­lög­gjöf. Öll mann­rétt­inda­sam­tök sem ná máli hafa snú­ist til varnar fyrir Julian. Samkvæmt lista Evr­ópu­sama­bands blaða­manna er hann eini blaða­mað­ur­inn sem situr í fang­elsi fyrir störf sín í Bret­landi. Tvær stofn­anir Sam­ein­uðu þjóð­anna hafa úrskurðað að alvar­lega hafi verið á honum brotið. Þingmenn Evr­ópu­ráðs­ins hafa ályktað að það eigi að stöðva fram­sal Julians og losa hann úr prís­und­inn.Hvað gera leið­tog­arnir í Reykja­vík? Það má gjarnan spyrja utan­rík­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra að því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto