Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Versnandi veðurhorfur ógna þingkosningum – Ófærð og snjóflóðahætta í kortunum

Spáin fyrir laugardaginn er ekkert sérstök.
Spáin fyrir laug­ar­dag­inn er ekk­ert sér­stök. Mynd: blika.is

Líkurnar á að þing­kosn­ing­unum á laug­ar­dag­inn verði frestað fara hækk­andi því veð­ur­spáin fyrir Aust­ur­land hefur versnað en von er á mik­illi snjó­komu á Aust­fjörðum. Telur veð­ur­fræð­ingur að lík­legt verði þar ófært inn­an­bæjar og jafn­vel muni skap­ast sums staðar snjó­flóða­hætta.

Aust­ur­frétt segir frá mál­inu en Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur vekur athygli á vern­andi veð­ur­spá á heima­síðu sinni Blika.is. Segir hann þar að á morgun komi lægð upp að land­inu og frá henni byrji strax að snjóa á Aust­fjörðum annað kvöld. Allan aust­ur­helm­ing lands­ins mun síðan snjóa á laug­ar­dags­morgun en verður hún þétt­ust á Aust­fjörðum. Líkur eru á að úrkoman safn­ist mikið upp.

Spá Einars sýnir 29-64 mm á Fjarð­ar­heiði og 36-71 mm í Nes­kaups­stað. Þá segir Einar að á norð­an­verðum Aust­fjörðum geti upp­söfnuð úrkoma orðið allt að 50-100 mm, sem gæti kallað á við­búnað vegna snjó­flóða­hættu.

Óvíst er þó enn hvort mesti vind­streng­ur­inn nái upp á land eða haldi sig úti fyrir Aust­fjörðum en búist er við hvass­virði þegar líður á dag­inn. Gerist það fýkur nýfall­inn snjór­inn í skafla, sem getur valdið ófærð inn­an­bæjar á Aust­fjörðum og í kringum Egils­staði. Það fer svo eftir vind­átt hvort Fagri­dalur verði í skjóli. Búast má við 12-15 m/s á Fjarð­ar­heiði allan dag­inn. Þá má búast við svipti­vindum í kringum Höfn og á sunn­an­verðum Aust­fjörðum.

Samkvæmt Aust­ur­frétt verða engar stórar ákvarð­anir teknar varð­andi frestun kosn­inga fyrr en í fyrsta lagi á morgun en kjör­stjórnir hafa síð­ustu daga grand­skoðað veð­ur­spár og und­ir­búið hugs­an­legar aðgerðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn