Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Sólveig Anna slegin yfir ummælum lögfræðings ASÍ: „Lýsir samúð og stuðningi við geranda“

Mynd/skjáskot RÚV/samsett
Mynd/skjá­skot RÚV/sam­sett

„Það er satt best að segja ótrúlegt að upplifa þá miklu gerenda­meðvirkni sem ríkir innan stærstu hreyfingar vinnandi fólks á Íslandi. Hún sést með skýrum hætti í framferði lögfræðings ASÍ og einnig í því hversu stór hópur úr framvarða­sveit íslensku verkalýðs­hreyfingarinnar er tilbúinn til að sýna manninum sem rekinn var í gær frá Eflingu mikla og innilega hlut­tekningu á Facebook-vegg hans, þar sem öll geta séð, líka þær fjölmörgu konur sem tilheyra félögum innan ASÍ.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóndóttir, fyrrum formaður Eflingar, í pistli á Facebook-síðu sinni í dag.

Vísar hún þarna í pistil Tryggva Marteins­sonar, sem hann skrifaði á eigin Facebook-síðu í gær eftir að hafa verið sagt upp störfum sem kjara­fulltrúi Eflingar eftir 27 ára starf, og þau fjölmörgu stuðningsorð sem honum hafa verið send í formi athugasemda við pistilinn. Sólveig Anna tekur sérstak­lega fyrir athugasemd frá Magnúsi M. Norðdahl, lögfræðingi Alþýðu­sambands Íslands. Þar segir Magnús:

„Ömurlegar fréttir kæri félagi – á löngum ferli mínum í störfum fyrir þetta stóra stéttar­félag hefur mig aldrei verið orði á þig hallað – þvert á móti.“

Sólveig Anna hefur áður sagt frá því að Tryggvi hafi hótað henni með ofbeldi þegar hún starfaði enn sem formaður Eflingar.

Tryggvi Mart­eins­son. Mynd/skjá­skot RÚV

Sólveig Anna birtir í pistli sínum bréf, sem hún segist þegar hafa sent á Magnús Norðdahl. Afrit af bréfinu fóru til Drífu Snædal, forseta ASÍ og Höllu Gunnars­dóttur, framkvæmda­stjóra ASÍ.

Í bréfinu segir meðal annars að Tryggvi Marteinsson hafi hótað Sólveigu ofbeldis­verkum á heimili hennar. Hún segir að hótuninni hafi fylgt nákvæm útlistun á því hvernig Tryggvi hefði áður látið hótanir sínar gegn meintum óvinum verða að veruleika. Hún segir hann einnig hafa talað um að ef hann léti verða af verknaðinum í þessu tilfelli myndi hann einungis hljóta skilorðs­bundinn dóm ef hann yrði dæmdur.

Átti engan þátt í uppsögn Tryggva

„Eins og ég hef greint frá opinber­lega þá liggur fyrir skrif­legur vitnis­burður frá starfs­manninum sem hann orðaði hótanir sínar við. Þessi vitnis­burður kom fram bæði í samtölum við aðra starfs­menn, m.a. trúnaðar­mann vinnu­staðarins, og í skrif­legum samskiptum sem liggja hjá mannauðs­stjóra skrif­stofu Eflingar.

Ég féll frá ósk um aðgerðir vegna málsins af hálfu stjórn­enda á skrif­stofu Eflingar en kaus þess í stað að tilkynna um hótunina til lögreglu, eins og ég hef líka sagt frá opinber­lega.

Skömmu síðar fór af stað atburðarás sem leiddi til þess að ég sagði af mér sem formaður Eflingar.“

Sólveig Anna segist ekki hafa átt neinn þátt í þeirri ákvörðun núverandi stjórn­enda að víkja Tryggva úr starfi. Hún segist ekki hafa vitað af þessu fyrr en eftir á.

„Ég hef því ekki áreiðanlega vitneskju um ástæður uppsagnar, en samhengið er þó augljóst.

Í gærkvöldi birti starfs­maðurinn stöðu­uppfærslu á Facebook þar sem hann segir frá uppsögninni. Hann uppnefnir af þessu tilefni stjórn­endur Eflingar „kommúnista“, segist hafa „goldið þess“ að vera „karlmaður og Íslend­ingur“, og notar tækifærið í ummælum neðan við færsluna til að spyrja hvort Efling sé að breytast í „pólska útgáfu af stéttar­félagi“. Uppfærsla starfs­mannsins er opinber og öllum Facebook-notendum sýnileg.“

Sakar Magnús um gerendameðvirkni

Sólveig víkur að ofan­greindum ummælum Magnúsar í athugasemd við færslu Tryggva.

„Þú ert lögfræðingur Alþýðu­sambands Íslands og nýtur sem slíkur mikillar virðingar­stöðu. Horft er til orða þinna ekki aðeins sem leið­sagnar eða álits, heldur jafnvel sem einhvers konar úrskurðar, enda er það svo að Alþýðu­sambandinu er treyst til að skera úr um ýmis mál sem varða aðildar­félögin og kemur þá iðulega til þinna kasta.“

Sólveig segist aldrei hafa gert kröfu um afskipti Magnúsar eða ASÍ af málinu.

„Hins vegar get ég ekki hjá því komist að lýsa undrun minni og raunar áfalli að verða vitni að því að þú sjáir þig knúinn að stíga fram með þessum hætti.

Með orðum þínum lýsir þú frammi fyrir almenningi samúð og stuðningi við geranda í ofbeldis­máli, og kastar um leið opinber­lega rýrð á frásögn mína sem þolanda hótunar af hálfu viðkomandi. Þetta gerir þú jafnvel þú hljótir að vera upplýstur um inntak þess sem ég hef greint frá um málið, þ.e.a.s. hversu einbeittum vilja til ofbeldis­verknaðar var lýst, að vitnis­burður liggi fyrir og að málið hafi verið tilkynnt verið til lögreglu.“

Telur Magnús gera ASÍ vanhæft til aðkomu að ofbeldismálum

Sólveig Anna fer í pistlinum yfir þá vitundar­vakningu sem orðið hefur síðustu ár um hlutverk verkalýðs­félaga í málum sem snúa að kynbundnu ofbeldi og áreiti.

Varða – rannsóknar­stofnun vinnu­markaðarins framkvæmdi rannsókn á málum er varða kynferðis­lega og kynbundna áreitni og ofbeldi að beiðni miðstjórnar ASÍ og stjórnar BSRB.

„Ég tel að með framgöngu þinni hafir þú gert Alþýðu­sambandið vanhæft til aðkomu að málum sem snerta kynbundið ofbeldi og áreiti. Stofnun sem felur karli með þín viðhorf og hugmyndir um hvað telst ásættanleg opinber framganga í slíkum málum stöðu æðsta lögfræði­valds hefur tapað trúverðug­leika sínum.

Enginn þolandi í kynbundnu ofbeldis- eða áreitnis­máli getur treyst því að mál þeirra fái faglega eða hlutlausa meðferð af hálfu ASÍ meðan þú gegnir þar þeirri stöðu sem þú gerir.

Ég er ekki lengur í stöðu formanns Eflingar. Ég skrifa þér því þessar línur sem almennur félagi í einu af aðildar­félögum Alþýðu­sambandsins og sem þolandi ofbeldis af hálfu starfs­manns á skrif­stofu sama félags.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim