Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Fjarðabyggð og Múlaþing ætla að fyrna óútekin orlof starfsmanna sinna – Verkalýðsfélög vara við því

Múlaþing
Múlaþing Mynd: Rúv-skjáskot

Fjarða­byggð og Múlaþing hyggj­ast fyrna ótekin orlöf starfs­manna sinna þann 30. apríl næst­kom­andi.

Samkvæmt Aust­ur­frétt mun allt ótekið orlof starfs­manna Fjarða­byggðar og Múla­þings, falla niður dautt þann 30. apríl næst­kom­andi, sam­kvæmt ákvörðun sveit­ar­fé­lag­anna, nema sterkar mál­efna­legar ástæður komi til. Þetta þýðir að það starfs­fólk sem ekki hefur klárað orlof sitt fyrir 30. apríl, missir alla áunna frí­daga sem eftir standa og fær engar bætur fyrir.

Um þetta er ágrein­ingur á milli Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Alþýðu­sam­bands Íslands en áður nefnd sveit­ar­fé­lög túlka til­tekna grein í aðal­kjara­sam­ingi þannig að slík fyrn­ing sé bæði eðli­leg og leyfi­leg og vísa í orlofslög og gild­andi kjara­samn­inga. Verka­lýðs­fé­lögin eru þessu ósam­mála og vísa í sömu orlofslög, auk sér­stakrar til­skip­unar Evr­ópu­sam­bands­ins sem gilda hér á landi.

Verka­lýðs­fé­lögin, þar með talið starfs­greina­fé­lagið Afl á Aust­ur­landi, eru þeirrar skoð­unar að með þessum gjörn­ingi sé verið að fella niður áður óunnin laun en sam­kvæmt sam­komu­lagi á vinnu­mark­aði fær starfs­fólk til­setta upp­hæð greidd í laun með lof­orði um að seinna verði önnur upp­hæð greidd sem orlof­s­pen­ingar. Það lof­orð er svikið með fyrn­ingu, að mati verka­lýðs­fé­lag­anna.

Aust­ur­frétt fékk það stað­fest að Fjarða­byggð og Múlaþing ætli sér að standa fast á túlkun sveit­ar­fé­lag­anna og fyrna allt ótekið orlof, nema starfs­fólk geti gefið mark­tækar ástæður fyrir að ljúka ekki orlofstöku að fullu áður en næsta orlofsár hefst. Fram kemur hjá Aust­ur­frétt að hvorki Fljót­dals­hreppur né Vopna­fjarð­ar­hreppur hyggj­ast fyrna útistand­andi orlof sinna starfs­manna. Afl starfs­greina­fé­lag hefur varað Fjarða­byggð og Múlaþing við að félagið muni gæta hags­muna sinna félags­manna þegar og ef til fyrn­unar kemur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Seth Rogan verður meðal handritshöfunda en Culkin sjálfur kom með hugmyndina að framhaldinu.
Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp