Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Davíð Rúnar Bjarnason er gestur vikunnar í Einmitt: “Að deyja í brautinni frekar en að hætta”

Davíð Rúnar
Davíð Rúnar Mynd: Aðsend

Davíð Rúnar Bjarna­son afreks­maður í utan­vega­hlaupum, box­ari og bar­áttu­maður er gestur Einars Bárðar í nýjasta þætt­inum af Einmitt. Fyrir nákvæm­lega ári síðan hljóp Davíð Rúnar 100 mílur eða 161 km í utan­vega­hlaup­inu Salomon Hengill Ultra í Hvera­gerði. Davíð hljóp einnig tvö hund­ruð kíló­metra á hlaupa­bretti í World Class í des­em­ber í fyrra til að vekja athygli á starf­semi Píeta og safna pen­ingum fyrir starf­semi þeirra. Hann þolir ekki bómull­ar­væð­ingu og vill að við ölum upp sterka ein­stak­linga eins og hann segir sjálfur.


„Vil vita hvað ég get“

„Maður er bara einu sinni hérna á jörð­inni, að því er við vitum og það er skrítið að fólk vilji ekki vita hvað við getum,“ segir hann aðspurður um hvatana til þess að fara svona langar vega­lengdir í keppni. „Ég myndi aldrei, ef það eru þrjár vega­lengdir í boði, fara í aðra vega­lengd en lengst,“ segir hann. Þannig er það ekki hlaupið sjálft sem heillar hann heldur vega­lengd­irnar. Þannig segir hann for­send­una fyrir því, að reyna 100 mílur, fyrst og fremst það að sjá hvað hann geti í raun lagt á sig sem ein­stak­ling og klárað.Minnti sig á það í heilt ár að hann þurfti að klára

Davíð hafði gert atlögu að vega­lengd­inni árið 2021 og þá þurfti hann að hætta eftir rúm­lega tvo þriðju af vega­lengd­inni. Hann lýsir því hvernig hann hafi verið von­svik­inn og reiður út í sjálfan sig og minnt sig á það á hverju degi í ár að hann ætti eftir að klára þessa vega­lengd. Sumarið 2022 var hann svo mættur á ráslín­una, hljóp alla vega­lengd­ina og kláraði. Hann kom í mark í kvöldsól­inni í Hvera­gerði umvaf­inn vinum og fjöl­skyldu um rúm­lega 31 klukku­tíma eftir að hann hóf keppn­ina.

Davíð og Einar Bárða ásamt aðstand­endum.

Þolir ekki „macho kjaftæði“

Þá þjálfar hann ungt fólk í ólympískum hnefa­leikum og skipu­leggur stærstu keppn­is­við­burði í því sporti á Íslandi. Hann er vin­sæll box þjálf­ari og fer óhefð­bundnar leiðir í þjálfun­inni. „Ég læt alla sem eru í þjálfun hjá mér kynn­ast, set þau niður í byrjun tíma­bils­ins, eitt á móti einu og þau eiga að tala saman, ég vil að þau styrk­ist líka félags­lega.“ Hann segir mark­mið sitt vera að byggja upp sterka ein­stak­linga, ekki til þess eins að vera lík­am­lega sterkir heldur and­lega sterkir. Hann þolir ekki „macho kjaftæði“ eins og hann segir sjálfur.

Hljóp til styrktar Píeta sam­tök­unum

Þeir ræða einnig bar­áttu Davíðs við ADHD og ýmsar áskor­anir því tengdu. Þá hefur Davíð Rúnar skipu­lagt verk­efni til styrktar Píeta sam­tök­unum sem hann segir að vinni frá­bært starf. Það gerir hann bæði til að safna pen­ingum en ekki síður til að vekja athygli á starf­semi þeirra sem hann segir vera til staðar fyrir fólk í sjálfs­vígs­hugs­unum á meðan rík­is­stofn­an­irnar séu í fríi á kvöldin og um helgar.

Salomon Hengill Ultra 2023 fer fram eftir tvær vikur í Hvera­gerði.

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér

bit.ly/3AuejEW

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas