Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sigga Dögg um kyrkingarnar: „Það hljómaði eins og ég væri bara með þetta á glæru fjögur“

Sigríður Dögg Arnar­dóttir kynfræðingur, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, hefur verið í þunga­miðjunni á heitri og oft óvæginni samfélags­umræðu undan­farið. Sú umræða fór af stað eftir að Sigga Dögg hafði sótt námskeið um fyrirbæri sem kallast „breath play“ og deilt upplýsingum af námskeiðinu sem henni þótti bæði áhuga­verðar og mikil­vægar, á Instagram-síðu sinni. Hún sagði unglinga oft spyrja um kyrkingar í kynfræðslu; eitt af fjölmörgum atriðum sem spurt er um á námskeiðum hennar og hún stígur inn í með krökkunum á grund­velli samþykkis og fræðslu.

Sigga Dögg er í nýjasta helgar­viðtali Mannlífs.

Misskilningurinn um kyrkingarnar

Sigga Dögg kemur inn á hinar alræmdu kyrkingar og þá staðreynd að ákveðnir einstaklingar virðast hafa misskilið málið nokkuð duglega. Svokallað breath play námskeið, sem Sigga Dögg hafði talað um á Instagram-reikningi sínum, var námskeið fyrir fullorðna, sem hún sótti sjálf sem gestur. Það var erlendur sérfræðingur sem hafði verið fenginn til þess að halda námskeiðið. Sigga Dögg hélt það semsagt ekki sjálf.

„Ég vissi mjög lítið um breath play. Maður hafði heyrt um kyrkingar og það var nú einmitt fyrirsögn í DV, þar sem ég var gagnrýnd fyrir að gagnrýna kyrkingar. Það er vandlifað í þessum heimi.

„Mér dytti aldrei í hug að segja við ung­linga: Ekki gera það“

En í mínum huga er þetta eitthvað sem er hættulegt, það þarf að passa sig. Ef fólk fílar það, allt í lagi. Mér dytti aldrei í hug að segja við unglinga: Ekki gera það. En þegar ég hef verið spurð út í það hef ég alltaf lagt gífurlega áherslu á að þetta sé rosalega vandasamt. Ég var með hóp þar sem við vorum að tala um þetta, og ég sagði: „Ef kynlíf byggir á samtali og samþykki, virku samþykki, þar sem þarf reglulega að fá samþykki fyrir öllu sem er verið að gera – ef manneskjan getur ekki tjáð sig, þá er samþykki ekki til staðar. Ef manneskjan er meðvitundar­laus, þá er ekki samþykki til staðar. Hvað eruði að gera þegar þið eruð að þrengja að öndunar­vegi?“ Þá fórum við í gegnum það ef þú vildir ekki gera þetta; hvað ef þú vildir ekki fá hönd á háls, hvað ef þú vildir ekki leggja hönd á háls. Fram og til baka í þá dýnamík. Og ég sagði: „Kannski er bara spennandi að prófa í smá stund að leggja hönd á háls og sjá hvernig það er. Hvernig líður þér með að vera höndin? Hvernig líður þér með að vera hálsinn? Þá þarf aftur að tékka inn; hvað finnst okkur um þetta? Hvernig líður þér og hvernig líður mér?“ Þannig að við höfum alltaf talað um þetta á svona ótrúlega mildum og þægilegum, mjúkum nótum. Aldrei þannig að þetta sé bara: „Heyrðu og svo, einn, tveir og let’s go!“ Þetta er aldrei þannig og hefur aldrei verið þannig. Mun aldrei verða. Ekki heldur fyrir fullorðna. Ég myndi aldrei mæla með því fyrir neinn að vera með neitt surprise element í kynlífi. Spurðu, áður en þú gerir.

Á þessu breath play námskeiði var farið í allskonar tækni, það var farið í öryggis­atriði, meðal annars eitt sem ég deildi strax á Instagram, sem er upphafið að þessu öllu saman. Ég lærði semsagt á námskeiðinu að það eru tvær æðar á hálsinum og ef þú klemmir þær báðar þá stöðvarðu blóðfæði og þar með súrefnis­flæði upp til heilans. Þegar fólk er að leika sér með kyrkingar, þá meina ég til þess að láta líða yfir sig, þá er það að gera þetta. Þetta getur byrjað að valda skaða innan tíu sekúndna, held ég. Mér fannst ég verða að segja frá þessu.

Ég man eftir þessu, að krakkarnir voru að gera þetta þegar ég var í grunn­skóla. Ég reyndar gerði þetta ekki, af því að ég var hrædd. En vinkonur mínar gerðu þetta og það var sérstakur staður á skóla­lóðinni þar sem krakkarnir voru að þessu.

Ég hefði nú bara viljað að einhverjir sjúkra­liðar eða læknar hefðu gripið inn í umræðuna hér. En mér skilst semsagt að ef manneskjan rankar ekki við sér innan þessara tíu sekúndna, þá getur það farið að valda súrefnis­skorti í heila, sem er mjög hættu­legur. Þá getur verið erfitt að vinna aftur einhvern óafturkræfan skaða.

Ég hugsaði bara: „Fólk er búið að vera að leika sér með þetta, er fólk að gera þetta þannig að það er kannski að líða yfir það? Kannski er það orðið kikkið.“

Svo ég fór strax um kvöldið, eftir námskeiðið, á Instagram og sagði: „Ég verð að segja ykkur! Hérna eru tvær æðar og þið verðið að passa, ef þið eruð að leika ykkur með þetta, að gera þetta ekki svona. Við lærðum þessa tækni; þá geturðu farið, ef þú vilt, fastar og harðar. Ef ykkur finnst það æsandi. Bara ekki þessar æðar! Þetta er mál sem er búið að vera vinsælt og í deiglunni, ég tek þetta oft fyrir í skólum þegar það er spurt um þetta og ég hef útskýrt samþykki fyrir krökkunum.“

Krakkarnir hafa spurt til dæmis um rassskellingu. Þá tek ég samþykkis­umræðu með þeim og útfærslan okkar er rassskelling. Þá tökum við þetta alveg frá því að ég er með hugsunina: „mig langar að rass­skella þig“ eða „mig langar að þú rass­skellir mig“ og þá tökum við samtalið alveg frá A til Ö. Áður en rassskelling á sér stað, í fyrsta samtali, þangað til hún er búin – ef það var samþykki fyrir rassskellingu. Við tökum þetta alveg fyrir og kryfjum. Við höfum gert það líka með þetta háls­taksmál. Þá hef ég alltaf verið að leggja gífurlega áherslu á hvað þetta er hættulegt og vandasamt og afhverju sumum þyki þetta æsandi og hvernig það lítur út.

BDSM samtökin eru yfirleitt ekki með fræðslu fyrir einstaklinga undir 18 ára. Þannig að hvað áttu að gera við þennan hóp? Tíundi bekkur til framhalds­skóla.

Svo á þessu breath play námskeiði var margt sem ég hugsaði að ég myndi ekki fræða um. Það var sum tækni þarna sem ég áleit svo hættulega að ég hugsaði: „Ef ég verð einhvern tíma spurð út í þetta, þá mun ég bara segja nei. Mér finnst þetta of langt gengið. Ekki gera þetta, þetta er ógeðslega hættulegt.“

„Það hljóm­aði eins og ég væri bara með þetta á glæru fjögur“

Krakkar hafa leikið sér með allskonar. Það er ástæða fyrir því að það stendur á pokum: Ekki setja yfir haus á barni. Á ákveðnu aldurs­bili máttu börnin mín ekki sjá poka, þá var hann farinn á hausinn á þeim. Hvað er það? Það er form af breath play – og við fáum náttúru­lega tauga­áfall. Ég set hnút á alla poka, af því að ég er svo paranoid yfir þessu. Það var farið fyrir það meðal annars á þessu námskeiði og það var talað um allskonar form af munnmökum og ég var bara: „Munnmök? Munnmök sem breath play? Vá, hvað það er áhugavert. Vá hvað ég hef aldrei hugsað það.“ Þar var til dæmis talað um konuna sem stjórn­anda.

Ég fer inn á Instagram til þess að segja frá því sem ég hafði verið að læra. Þannig byrjar þetta. Ég sagði þarna: „Vá, hvað það er mikið sem ég vissi ekki, sem ég get miðlað til full­orðinna.“ Svo sagði ég: „Og það er reyndar ógeðslega praktískt að vita þessa nákvæmu útfærslu, af því að það er oft spurt að þessu í kynfræðslu, unglingar spyrja oft að þessu og mér finnst mjög mikilvægt að vita nákvæmlega þetta upp á skaða­minnkun.“ Ég sagði að við töluðum oft um þetta mál og ég kallaði þetta kyrkingar, því þau kalla þetta kyrkingar. Þau tala yfirleitt ekki um hálstak, þau tala bara um kyrkingu. Ég sagði: „Þetta er búið að vera í deiglunni, ég er búin að þurfa að tala um þetta oft og við höfum bara stigið inn í þetta.“ Eitthvað svona. En það hljómaði eins og ég væri bara með þetta sem glæru fjögur.“

Sigga Dögg segir að hún hefði skilið viðbrögðin sem hún fékk, ef hún hefði sagt hlutina á þennan ýkta hátt sem fólk virtist halda að hún hafi gert.

„En þetta var bara: „Nýlega hefur verið meira um spurningar um þetta. Það kemur eitthvað inn, eitthvað trendar á tiktok, og þá þarf ég að taka það fyrir, þegar þau spyrja.“ Nema það smurðist út í að þetta væri í glæru­pakkanum mínum. Það er bara mjög stutt síðan ég var með kynfræðslu fyrir allan tíunda bekk, í nóvember, á Akureyri. Þar sátu kennarar inni í öllum tímum. Ég held að við höfum tekið þetta tiltekna umræðu­efni fyrir í einum fyrir­lestri af níu. Þá lékum við samþykki og mörk, til þess að sjá hvernig það virkaði. Þá einmitt sagði ég: „Hvernig leikum við þetta samþykki? Við erum ekki að fara að leika samfarir. Eigum við að leika rassskellingu?“ Þá svaraði einhver: „Já, leikum rassskellingu.“ Þá útskýri ég að ef við ætlum að gera þetta erum við búin að taka rosalega langt samtal. Svo slæ ég lauslega í borðið, tek þetta alltaf frá báðum hliðum og hef þetta kynlaust. Ég segi við krakkana að hérna séu það ekki kynhlutverkin sem móti þau.“

Lesið viðtalið við Siggu Dögg í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim