Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hrafnkatla er heilari og miðill: „Stundum á ég bágt með að skella hreinlega ekki upp úr sjálf“

Hrafnkatla Valgeirsdóttir
Hrafn­katla Val­geirs­dóttir Mynd: Aðsend

Hrafn­katla Valgeirs­dóttir skynjar ekki heiminn á sama hátt og margir aðrir. Mannlíf ræddi við þessa skemmtilegu konu um uppvaxtar­árin á Blönduósi, jólin, andlegt ferðalag hennar í kjölfar fæðingar frum­burðarins og söng­heilunina sem vakið hefur athygli fólks að undan­förnu.

Hrafn­katla Valgeirs­dóttir er fædd á Blönduósi árið 1982 og bjó hún þar til sex ára aldurs en þá flutti fjöl­skyldan á Akureyri. Þar var hún í sjö ár og sneri aftur heim á Blönduós þegar hún var að byrja í 8. bekk.

„Foreldrar mínir búa ennþá á Blönduós, bróðir býr í Reykjavík og systir í Njarðvík. Er með stúdents­próf frá Mennta­skólanum í Kópavogi, Bs gráðu í hjúkrunar­fæði frá Háskóla Íslands og svo byrjaði ég í Guðfræði haustið 2020 og kláraði eina önn með stæl en fann að þetta var ekki leiðin,“ segir Hrafn­katla og heldur áfram, „ég er einhleyp og á fjóra drengi, er að ala upp tvær kynslóðir sem er rosalega lærdóms­ríkt. Dren­girnir eru 16, 14, 5 og 3 ára. Eldri dren­girnir eiga sama pabba og yngri sama pabba, sem sagt tveir barns­feður.“

En hvernig var að alast upp á Blönduósi? Ber Hrafn­katla sterkar taugar norður?

„Ég átti æðisleg uppvaxtarár á Blönduósi í faðmi foreldra, systkina, ömmu og afa báðu megin og frændfólks. Áfram var svo yndislegt á Akureyri í fyrstu bekkjum grunn­skóla. Byrjaði að æfa handbolta og frjálsar íþróttir 11 ára á Akureyri og þótti fljótt mjög efnileg í báðum íþróttum. Þegar ég flutti heim á Blönduós var ég í þvílíkum uppgangi í boltanum en það lognaðist út mjög fljótt þar sem svo fáir voru að æfa handbolta á Blönduós að vart náðist í lið. Það reyndist talsvert erfitt fyrir unglings­stúlkuna Hrafnkötlu að hætta í hand­boltanum.

Var aðeins lengur í frjálsunum en það lognaðist einnig út af í kjölfarið og var það svona meira vegna þess að gelgjan var farin að segja all verulega til sín og hvorki töff lengur að vera í íþróttunum né að vera með vöðva. Ég ber mjög sterkar taugar til Blöndu­ósar og finnst æðislegt að komast úr höfuð­borginni og kíkja norður til mömmu og pabba. Gæti þó ekki flutt á Blönduós því borgar­lífið hentar mér einhvern betur en smábæjar­lífið. Flutti suður 21 árs og búið þar síðan, fyrst í Grafar­voginum og síðan verið í Grafar­holtinu frá 2007.“

Hrafn­katla er brosmild kona

Hrafn­katla skynjar heiminn svolítið öðruvísi en flest fólk en hún er bæði heilari og miðill. Hvernig byrjaði það?

„Sem barn var ég víst rosalega róleg og sjálfri mér næg. Algör dundari segir mamma mín. Á þann hátt að ég gat setið tímunum saman kyrr með sama dótið. Varðandi næmni af einhverju tagi þá var hún vissulega til staðar frá fyrstu tíð í formi þess að ég skynjaði mjög sterkt hvernig fólki leið hverju sinni. Á einum degi gat það verið þannig að ég upplifði allan tilfinninga­skalann allt frá mikilli sorg til mikillar hamingju og var það þá minnst af mínum eigin tilfinningum heldur frá umhverfinu.“

En svo breyttist allt. „Árið 2005 þegar ég er 23 ára hefst kröftugt andlegt ferðalag strax eftir fæðingu fyrsta barnsins míns með gríðarlegri opnun á andlega heiminn sem fólst í næmari skynjun á allan hátt. Ég réð alls ekki við þessa breytingu og var lögð inn á geðdeild með barnið mitt í tvær vikur þegar hann var aðeins tveggja vikna gamall.“

Hrafn­katla var fljót að ná sér en við tók erfitt tímabil. „Ég var fljót að ná mér en við tók eins og hálfs árs tímabil þar sem ég upplifði mig mjög eina á báti með mína skynjun í nokkur ár með þessa nýtilkomnu auknu skynjun og upplifði að ég gæti ekki tjáð mig um þetta við neinn. Það breyttist síðan heldur betur eftir að ég fór á fyrsta andlega námskeiðið en það var hjá Garðari Jónssyni miðli. Þá komst ég loksins í kynni við fólk á sömu bylgjulengd sem ég er ennþá í miklu sambandi við. Meðfram námskeiðum sem ég hef farið reglulega á í þessi 17 ár var það þannig að ýmis verkefni í lífinu sem reyndu á opnuðu meira og meira inn á tenginguna við andans heiminn. Má þar nefna lífsreynslur eins og skilnaði, ofbeldi, andlega vanlíðan og örmögnun.“

Þegar blaða­maður Mannlífs spyr Hrafnkötlu um hennar stærstu sigra á lífs­leiðinni var hún fljót að svara. „Þessu er fljóts­varað. Að ganga með og koma fjórum börnum í heiminn eru algjör­lega það magnaðast sem ég hef upplifað. Stærsti sigur er tengist andlegu þróuninni er að umbreyta hroka sem ég bar með mér í algera auðmýkt.“

En nú er að koma jól og þá verður maður að spyrja hvort hún sé jólabarn.

„Ég var gríðar­lega mikið jólabarn þegar ég var yngri og fékk að fara til ömmu og afa á Blönduósi um leið og jólafríið hófst til þess að undibúa jólin með ömmu, skreyta, baka og pússa silfrið. Eftir að þau fóru yfir í andans heiminn hafa jólin aldrei verið söm en urðu mjög ánægjuleg eftir að börnin fóru að koma í heiminn.“

Hrafn­katla í nátt­úr­unni


Blaða­maður Mannlífs tók eftir tali Hrafnkötlu um „Hinn fjólubláa loga“ á Facebook og vildi endilega fá útskýringu á því fyrirbæri.

„Ég miðla meistara sem er meðlimur í Helgi­stjórn jarðar. Hún er nokkuð þekkt hér á jörðinni innan þess sem kallast Guðspeki. Innan hennar eru uppstignir meistarar sem hafa gengið á jörðinni líf eftir líf í gegnum miklar þjáningar og niður­lægingu af ýmsu tagi og náð svokallaðri uppstigninu. Hann kallar sig Meistara R eða Greifann af St. Germain. Fjólublái loginn táknar 7. geisla sem stendur fyrir Umbreytingu og Meistari R stýrir þeim geisla. Meistari R er í forsvari fyrir Gullgerðar­listina (E: alchemy) þar sem m.a. er verið að breyta andlegum sársauka í reynslu sem nýtist einstaklingnum til góðs þannig að hann geti nýtt sárs­aukann til að hjálpa öðrum. Líkt og að breyta málmi í gull.“

Hrafn­katla tekur Titanic á þetta

Mjög áhugavert svo ekki verði meira sagt. En nú bíður Hrafn­katla ekki aðeins upp á hefð­bundna miðlun og heilun heldur einnig upp á eitthvað sem kallast söng­heilun sem hefur verið að vekja athygli. Hvað í ósköpunum er söng­heilun?

„Ég hef verið sísyngjandi frá fæðingu nánast. Rosalega fljót að pikka upp bæði lög og texta. Fór tvær annir í söngnám hjá Gísla Magna. Fyrir um þremur árum fara söngurinn og heilunin að tengjast. Fyrst með notkun laga sem eru til og eftir aðra, síðan fara að koma lög og textar í flæðinu sem eru persónuleg til hvers og eins kúnna. Einnig oft á tíðum alls konar tónar og hljóð, sum hver mjög furðuleg og hreinlega eins og það séu hljóðfæri á svæðinu. Stundum á ég bágt með að skella hreinlega ekki upp úr sjálf,“ segir hún og hlær. Hún heldur svo áfram. „Enginn heilunar­tími er eins og ekkert undibúið. Ekki frekar en þegar ég er að miðla þá er ekki hægt að undirbúa neitt því það flæðir bara í gegnum mig orkar eða upplýsingar sem eru til viðkomandi. Í söng­heilunni er tíðnin í söngnum notuð til heilunar á bæði efnislega og andlega líkamanum. Tíðnin er stillt eftir því hvað hentar viðkomandi og hvað er verið að vinna með hverju sinni.“

Skemmtilegt greini­lega. En að lokum, hvað ber framtíðin í skauti sér? Þá meina ég bara hjá þér og þínum, ekki hjá þjóðinni allri eins og þegar völva Vikunnar er spurð. 

„Sinna hlut­verkinu sem ég valdi mér áður en ég kom í þetta jarðlíf. Koma börnunum mínum vel á legg þannig þau upplifi sig sjálfstæð og séu fær um að standa vel og styrk á eigin fótum. Við ætlum að njóta lífsins i botn saman. Þeir fá að velja sína leið hver fyrir sig og munu fá fullan stuðning þó að þeir misstígi sig eða velja hreinlega allt aðra leið. Eins líka að vera til staðar fyrir fólk sem þarf á minni þjónustu að halda er kemur að heilun og miðlun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni