Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Segja meðal ann­ars Palest­ínu­menn hafa verið flutta í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl til Tel Aviv.

Keflavíkurflugvöllur
Kefla­vík­ur­flug­völlur Mannlíf bíður eftir svörum frá Isavia og utan­rík­is­ráðu­neyt­inu Mynd: Keflavíkurflugvöllur

Samtökin BDS Ísland segja flug­vélar tengdar brott­vís­un­ar­að­gerðum banda­rískra yfir­valda hafa tekið elds­neyti hér á landi og gagn­rýna íslenska fjöl­miðla fyrir áhuga­leysi um málið.

BDS Ísland hefur birt mynd­skeið á sam­fé­lags­miðlum þar sem sam­tökin halda því fram að fjögur flug tengd brott­vís­un­ar­að­gerðum banda­rísku inn­flytj­enda- og toll­gæsl­unnar, ICE, hafi tekið elds­neyti á Kefla­vík­ur­flug­velli á þessu ári, þar af í eitt skipti þar sem Palest­ínu­menn voru fluttir frá Banda­ríkj­unum til Tel Aviv í Ísrael.

Samkvæmt upp­lýs­ingum BDS Íslands áttu flugin sér stað 27. apríl, 29. júlí, 1. ágúst og 10. sept­em­ber. Samtökin segja að flug­vél­arnar hafi verið reknar af Journey Aviation og teng­ist flug­unum brott­vís­unum frá Banda­ríkj­unum.

Sér­stak­lega er minnst á flug­vél­ina N62FF í mynd­band­inu, sem sam­kvæmt BDS Íslandi tók elds­neyti á Kefla­vík­ur­flug­velli 10. sept­em­ber.

Einkaþota í eigu viðskiptafélaga Trumps

BDS Ísland bendir á að N62FF sé í eigu banda­ríska auð­kýf­ings­ins Gil Dezer, sem hefur lengi átt við­skipti við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta.

Flug­vélin hefur einnig komið við sögu í umfjöllun The Guardian og +972 Magazine um flug sem tengj­ast brott­vísun Palest­ínu­manna frá Banda­ríkj­unum.

Samkvæmt þeirri umfjöllun voru Palest­ínu­menn sem banda­rísk yfir­völd höfðu hand­tekið fluttir með flug­vél sem tengd­ist Journey Aviation. BDS Ísland segir að upp­lýs­ingar um flug­ferð­irnar sýni að íslenskur flug­völlur hafi verið not­aður sem elds­neyt­is­stöð í tengslum við slík verk­efni.

Þá birti Amnesty International á Írlandi opið bréf þar sem sviðupum milli­lend­ingum þar í landi á vegum ICE er mót­mælt.

Samtökin gagn­rýna að íslensk stjórn­völd leyfi aðstöðu hér á landi til flug­ferða sem þau telja tengj­ast brott­vís­unum og mögu­legum brotum á alþjóða­lögum.

Gagnrýna þögn fjölmiðla

BDS Ísland segir að sam­tökin hafi komið upp­lýs­ingum og gögnum um málið á fram­færi við fjöl­miðla en að hingað til hafi eng­inn þeirra brugð­ist við.

Samtökin kalla eftir skýr­ingu á því hvers vegna flug­vélar sem tengj­ast brott­vís­un­ar­að­gerðum banda­rískra yfir­valda geti tekið elds­neyti á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Samtökin vilja jafn­framt að íslensk stjórn­völd rann­saki flugin og kanni hvort notkun Kefla­vík­ur­flug­vallar í þessum til­gangi sam­ræm­ist íslenskum lögum og alþjóð­legum skuld­bind­ingum Íslands.

BDS Ísland segja að gögn um flugin sýna skýrt að flug­vélar tengdar ICE hafi komið við á Kefla­vík­ur­flug­velli og tekið þar elds­neyti. Samtökin telja að íslensk stjórn­völd verði að bregð­ast við og tryggja að íslensk flug­vall­ar­að­staða sé ekki nýtt í aðgerðum sem kunna að brjóta gegn alþjóða­lögum.

Mannlíf hefur sent fyr­ir­spurnir á bæði utan­rík­is­ráðu­neytið og Isavia, um full­yrð­ingar BDS Íslands í téðu mynd­bandi og bíður svara.

Hér má sjá mynd­bandið sem BDS Ísland birti á dög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum