Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Silja Bára um Donald Trump: „Hefur auðvitað náð að búa til svona persónuleikasértrúarsöfnuð“

Silja Bára Ómars­dóttir segir að Donald J. Trump hafi búið til „per­sónu­leika­sér­trú­ar­söfnuð“ og telur að hann muni bera sigur úr bítum í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum.

Silja Bára, stjórn­mála­fræð­ingur mætti í spjall til Jóns Trausta Reyn­is­sonar í glæ­nýjum hlað­varps­þætti hans, Út fyrir boxið. Hér má lesa brot úr þætt­inum:

Jón Trausti: „Silja Bára Ómars­dóttir, sér­fræð­ingur í banda­rískum stjórn­málum og alþjóða­sam­skiptum, vel­komin. Nú blasir ein­hvern veg­inn við að við stöndum á kross­götum í heim­inum. Þú sérð það þannig, nú þurfum við að tölum saman, að það sé lík­leg­ast Trump verði for­seti. Hvað heldur þú að orsaki þetta því að, hann hefur nátt­úru­lega aðra stöðu núna heldur en síð­ast þegar hann vann kosn­ingar. Nú hefur hann verið dæmdur. Hann hefur orkís­trerað eða hvatt til árásar á þing­húsið í Banda­ríkj­unum. Hann hefur gengið mun lengra í yfir­lýs­ingum. Meðal ann­ars gegn póli­tískum and­stæð­ingum, hótar að nota her­inn gegn þeim og nafn­greindum aðilum. Hvers vegna heldur þú að fólk styðji hann ennþá í Banda­ríkj­unum?“

Silja Bára: „Trump hefur auð­vitað náð að búa til svona per­sónu­leika­sér­trú­ar­söfnuð. Hann er hold­gerv­ingur eða tákn­mynd ein­hvers konar and­stöðu fólks sem er ósátt við kerfið, ósátt við sitt hlut­skipti í líf­inu, finnst það ekki vera metið að verð­leikum, telur sig eiga rétt á að hafa aðra betri stöðu og ein­hverra hluta vegna þá nær þessi síð­mið­aldra eða aldr­aði millj­arða­mær­ingur að verða svona já hold­gerv­ingur þess að sem að fólk sér að ríkið sé vont við sig. Af því þú nefnir þessi dæmi með að hann hafi verið dæmdur og þess háttar, að þá getur hann sagt: „Sjáið þið hvernig komið fram við mig með öll mín völd og alla mína stöðu? Og hér er ríkið engu að síður að traðka á mínum rétt­indum. Að beita beita dóm­stólum í póli­tískum til­gangi gegn mér. Og hugsið ykkur hvernig það væri ef að ég væri ekki á milli ykkar og rík­is­ins.“ Þannig að, að, að það er eitt­hvað þarna sem hann nær að halda í. Með þessar hug­myndir sem hann setur fram með MAGA slag­orðið „Make America great again“, það vísar í ein­hverja óljósa, óskil­greinda for­tíð þar sem fólk getur svo­lítið valið hvaða mynd það er sem það myndi vilja sækja. Hvaða sam­fé­lags­gerð hann er að vísa í, af því að hann skil­greinir það ekki sjálfur. Þegar [Robert F.] Kennedy lýsti yfir stuðn­ingi við hann og kom fram með honum, hefur hann sagt: Jú, hann er að vísa í valda­tíma Johns F. Kennedy, svona Camelot-tíma­bilið kallað í Banda­ríkj­unum, en ann­ars hefur hann ekki gefið til kynna hvaða tíma­bil þetta er. En við­bragðið, til­finn­ingin sem þetta kallar fram hjá fólki er að mínu mati til­finn­ing um sam­fé­lag sem var fast­ara í skorðum, þar sem að hlut­verk kynja voru skil­greind­ari, þar sem að karlar voru fyr­ir­vinnur og konur voru heima­vinn­andi. Þar sem að sam­kyn­hneigð var ekki við­ur­kennd, karl­mennska var af ákveð­inni teg­und og þar af fram eftir göt­unum. Og líka að það var miklu meiri aðskiln­aður á milli fólks af ólíkum upp­runa.“

Hlusta má á við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn