Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Séra Geir Waage fjúkandi reiður – Ríkið græðir á fátækt eldri borgara og braskað með lífeyri

Séra Geir Waage segir að fátækir séu gerðir að féþúfu.
Séra Geir Waage segir að fátækir séu gerðir að féþúfu.

Geir Waage, fyrr­ver­andi sókn­ar­prestur í Reyk­holti, er harð­orður og rök­fastur í grein sem hann ritar í Morg­un­blaðið í dag. Þar fjallar hann um það hvernig ríki fer með eldra fólk og skilur það eftir í fátækt­ar­gildru.

„Til eru bjarg­álna gam­al­menni, nokkrir auð­menn, en þó flestir fátækir þegar lokið er við­skiptum rík­is­valds­ins af afkomu þeirra,“ skrifar Geir. Hann ber saman lægstu laun í land­inu og kjör öryrkja við eft­ir­laun hinna eldri og sýnir fram á mik­inn mun.

„Það er braskað með þessa pen­inga“

Þá rök­styður Geir það að í raun sé líf­eyrir flestra kom­inn til af fjár­magnstekjum en ekki úr sam­eig­in­legum sjóðum eins og ráða­menn haldi á lofti og þyk­ist vera að hlúa að hinum eldri. Ofan á þetta sé atvinnu­rek­endum falið að stjórna líf­eyr­is­sjóðum fólks­ins og beiti þeim í þágu fyr­ir­tækj­anna.

„Það er braskað með þessa pen­inga,“ skrifar Geir.

Hann bendir á að með skatt­lagn­ingu tekna hinna öldr­uðu tak­ist að féflétta yfir 30 þús­und gam­al­menni. „Afrek stjórn­mála­mann­anna er í því fólgið að þeir láta gam­al­mennin leggja 45 millj­arða króna í rík­is­sjóð á ári og hrósa sjer af því, hversu vel sje við þau gjört fyrir sinn atbeina. Þeir hafa sýnt að rík­inu er ekki ómátt­ugt að græða á fátækt,“ skrifar Geir.

Hann er harð­orður í lok grein­ar­innar.

„Til þess að vera sáttur við þetta þurfa spök­ustu öld­ungar að temja sjer flokks­heimsku ofan á vit­leysi“.

Viðbúið er að ein­hverjir mundu þiggja að fá Geir í fram­boð til að berj­ast fyrir kjörum hinna eldri og lúskra á þeim sem braska með almannafé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum