Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Íhugar að fara í mál við Sigfús

„Að benda á það er ekki að sam­þykkja ofbeldi eða rétt­læta afbrot“

Sigfús Aðalsteinsson
Sigfús Aðal­steins­son Mynd: BHJ

Jasmina Vajzovic seg­ist íhuga að leita lög­fræði­legrar aðstoðar vegna ummæla Sigfúsar Aðal­steins­sonar, fast­eigna­sala og for­svars­manns hreyf­ing­ar­innar Ísland þvert á flokka. Hún sakar Sigfús um að eigna sér skoð­anir sem hún hafi aldrei lýst og krefst þess að nafn hennar verði fjar­lægt úr færslu hans.

„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um sam­fé­lags­mál,“ skrifar Jasmina og seg­ist ekki kæra sig um að nafn hennar sé dregið inn í mál sem henni séu óvið­kom­andi.

Tilefni við­bragða Jasminu er færsla sem Sigfús birti á Facebook-síðu Ísland þvert á flokka. Þar fjall­aði hann um meint atvik þar sem leigu­bíl­stjóri er sagður hafa rukkað erlendan ferða­mann um tíu þús­und krónur fyrir akstur frá Ásbrú að Kefla­vík­ur­flug­velli. Sigfús hélt því jafn­framt fram að öku­mað­ur­inn hefði tekið síma ferða­manns­ins og kastað honum í göt­una eftir að far­þeg­inn kvart­aði yfir verð­inu.

Í færsl­unni tengdi Sigfús meint atvik við trú­ar­brögð þeirra sem hann sagði starfa hjá leigu­bíla­stöð­inni og hélt því fram að hann fengi fjöl­margar frá­sagnir af þjófn­aði, hót­unum og dóna­skap. Þá dró hann Jasminu inn í umræð­una og sagði hana telja slíka hátt­semi eðli­lega.

Hafnar lýsingu Sigfúsar alfarið

Jasmina hafnar þeirri lýs­ingu alfarið.

„Í færslu Sigfúsar Aðal­steins­sonar er því haldið fram að ég telji ofbeldi, þjófnað og hót­anir eðli­leg og að ég kalli fólk illum nöfnum. Þessu hafna ég alfarið,“ skrifar hún.

Hún segir að það sé rangt að hún telji ofbeldi, þjófnað eða hót­anir eðli­lega og sömu­leiðis að hún hafi kallað Sigfús illum nöfnum. Hún hafi vissu­lega lýst honum sem hvítum, mið­aldra for­rétt­inda­karl­manni en bendir á að hún hafi með sama hætti lýst sjálfri sér sem hvítri, mið­aldra for­rétt­inda­konu.

„Það er lýs­ing á sam­fé­lags­legri stöðu, ekki upp­nefni,“ segir Jasmina.

Hún segir meg­in­sjón­ar­mið sitt hafa verið að ein­stak­lingar beri ábyrgð á eigin gjörðum og að afbrot eins ein­stak­lings rétt­læti ekki alhæf­ingar um heila þjóðar- eða trú­ar­hópa.

„Að benda á það er ekki að sam­þykkja ofbeldi eða rétt­læta afbrot. Það hef ég aldrei gert,“ skrifar hún.

Jasmina seg­ist hafa óskað eftir því að Sigfús fjar­lægi nafn hennar úr færsl­unni og leið­rétti þær skoð­anir sem henni séu þar eign­aðar. Verði ekki orðið við þeirri beiðni hygg­ist hún leita lög­fræði­legrar aðstoðar.

„Verði ekki orðið við því mun ég leita lög­fræði­legrar aðstoðar til að gæta réttar míns,“ segir Jasmina en þegar þetta er skrifað stendur nafn hennar ennþá.

Deilurnar eiga sér lengri aðdraganda

Deil­urnar eiga sér lengri aðdrag­anda. Jasmina hafði áður gagn­rýnt ummæli Elliða Vign­is­sonar, bæj­ar­stjóra Ölfuss, um inn­flytj­enda­mál. Elliði hafði meðal ann­ars lýst áhyggjum af áhrifum umfangs­mik­ils inn­flytj­enda­flæðis og sér­stak­lega nefnt múslima í því sam­hengi. Hann sagði síðar að gagn­rýni sín beind­ist að inn­flytj­enda­stefnu og hug­myndum eða venjum sem gengju gegn jafn­rétti og frelsi.

Jasmina, sem er múslimi, tók þátt í þeirri umræðu og hefur lagt áherslu á að ekki eigi að dæma heila hópa út frá gjörðum ein­stakra manna.

Hún tekur jafn­framt fram að gagn­rýni á hennar eigin mál­flutn­ing sé eðli­leg og að fólki sé frjálst að vera henni ósam­mála.

„Fólk má vera ósam­mála mér og gagn­rýna það sem ég segi. En ég sætti mig ekki við að mér séu lögð orð í munn og síðan ráð­ist á mig fyrir þau,“ skrifar Jasmina.

Hún biður einnig þá sem taka þátt í umræð­unni að gæta orða sinna og seg­ist ekki vilja sjá upp­nefni í garð Sigfúsar.

„Kæri mér ekki um upp­nefni á mann­inum heldur. Mun eyða slíkum ummælum. Mín mark­mið eru ekki að vera á sömu línu og Sigfús,“ segir Jasmina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum