Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ásgeir brjálaður yfir ákvörðun yfirvalda um takmarkanir á íþróttaiðkun unglinga

Ásgeir Jónsson, mat­væla­fræð­ingur og starfs­maður við Háskól­ann í Reykja­vík tjáði sig á Facebook-síðu sinni um ákvörðun yfir­valda um tak­mörkun á íþrótta­starfi hjá ung­lingum. Færslan hefur fengið góðar við­tökur og nú hafa yfir 30 manns deilt henni.

Ásgeiri þykir óásætt­an­legt að börn að 15 ára aldri fái að æfa sínar íþróttir en ein­stak­lingar á fram­halds­skóla­aldri fá ekki að æfa.

„Það er ekki hægt að sitja aðgerð­ar­laus lengur þegar sótt­varn­ar­að­gerðir taka einn hóp, af ósekju, harðar fyrir en alla aðra. Það eru engin hald­bær rök fyrir því af hverju 15 ára ung­lingur má bæði sækja skóla og íþróttir en sá sem er 16, 17, 18 eða 19 má það ekki,“ skrifar hann.

Þá finnst honum ósann­gjarnt að ein­ungis þeir sem telj­ast til „afrek­s­í­þrótta­manna“ fái að æfa og segir engin rök vera fyrir skil­grein­ing­unni á því hverjir telj­ast afrek­s­í­þrótta­menn. Hann segir ung­linga sem iðka íþrótt­irnar sínar svo gott sem atvinnu­menn á því stigi þegar þeir spila með efstu deildum.

„Það eru engin rök fyrir því að skil­greina íþróttir þessa ald­urs­hóps ekki sem afreks­starf heldur. Er ung­lingur sem er í ung­linga­lands­liði í hóp­í­þrótt en leikur með liði í 1-2.deild ekki afreks­maður? Er sá aðili minni afreks­maður en sá sem æfir sprett­hlaup eða leikur með meist­ara­flokki í efstu deild?“

Framkoma við þennan aldurshóp óásættanleg

Hann segir allt of langt gengið gagn­vart þessum hópi, eða þeim hópi sem eru nú á fram­halds­skóla aldri.

„Þetta hefur ekk­ert með sótt­varn­ar­lækni að gera. Hann hefur sinnt, og er að sinna, sínu starfi frá­bær­lega. En að ÍSÍ og heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi ekki verið rödd þessa hóps á opin­berum vett­vangi er óásætt­an­legt. Ófyr­ir­gef­an­legt.“

Íþróttirnar mikilvægur félagslegur þáttur

Mannlíf greindi á dög­unum frá brott­falli ung­linga úr íþróttum á fram­halds­skóla­ár­unum og líðan ung­linga á fram­halds­skóla­stigi í COVID. Þar kom fram að for­eldrum þætti mik­il­vægt að æfingar gætu haf­ist að nýju sem fyrst til að auka félags­lega þátt­inn hjá þeim hópi og draga úr líkum á því að ung­ling­arnir þeirra hrein­lega hætti í íþrótt­unum sínum. Ásgeir tekur undir með þessum sjón­ar­miðum.

„Ég hef starfað með þessum ald­urs­hópi nokkuð lengi og þetta er að mínu viti við­kvæm­asti hóp­ur­inn þegar kemur að brott­falli. Rann­sóknir styðja þá ályktun.“

Hann bendir á félags­lega þátt­inn sem íþrótta­starfið getur haft. „Brott­fall á þessum árum er ekki bara að hætta eða byrja í íþróttum. Brott­fall getur ráðið úrslitum um hvaða leið við­kom­andi velur í líf­inu. Svo ég tali fyrir sjálfan mig þá leyfi ég mér að full­yrða að íþróttir hafi bjargað mér. 16 ára var ég hættur í íþróttum og hrein­lega í tómu rugli,“ skrifar Ásgeir.

Þá segir hann frá mik­il­vægi góðra þjálf­ara og að þjálf­ar­inn hans í hand­bolta þegar hann var ung­lingur hafi hrein­lega bjargað honum með því að hvetja hann til að halda áfram.

„Fyrir utan þau aug­ljósu skað­legu áhrif sem þetta langvar­andi bann hefur á fram­tíð­fólk Íslands í íþróttum. Það er mik­il­væg­ara að þessi hópur fái að stunda skóla og íþróttir en að full­orðið fólk fái að fara í rækt­ina, í sund, í leik­hús eða á bar­inn. Ég hef ekk­ert á móti þessum hlutum sem ég taldi upp. Það er bara galin for­gangs­röðun í mínum huga að setja þennan hóp aftan við þessa upp­taln­ingu.“

Rökin ekki næg og ábyrgðin er á fullorðna fólkinu 

„Rökin um að það verði aldrei allir sáttir eru heldur ekki nóg. Ekki þegar kemur að þessum ald­urs­hópi. Það er verk­efni okkar sem full­orðin eru að taka þessa ójöfnu byrðar á okkar herðar, ekki ung­linga. Hvar er ÍSÍ? Hvar er stjórn­mála­fólkið? Hvar eru heil­brigð­is­yf­ir­völd? Hvar er rödd þessa hóps? Þetta er óásætt­an­legt ástand og það er vel hægt að sinna sótt­vörnum án þess að þessi ald­urs­hópur sé í frosti á öllum sviðum,“ skrifar Ásgeir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas