Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Kristján rekinn vegna ummæla um transfólk: „Vitlaust fólk fæðist í réttum líkama“

Kristján Hreinsson.
Kristján Hreins­son.

Krist­jáni Hreins­syni hefur verið sagt upp störfum sem kenn­ari hjá Háskóla Íslands eftir pistil sem hann birti á Facebook síðu sinni. Þar for­dæmdi hann umræðu sam­fé­lags­ins þegar kemur að kyn­vit­und.

„Ef ein­hver seg­ist vera fæddur í röngum lík­ama þá verður sá hinn sami að sætta sig við það. Ég vor­kenni heimsku fólki og ég á þann kost vænstan að reyna að segja fólki sann­leik­ann.Vandinn liggur ekki í því að rétt fólk fæð­ist í vit­lausum lík­ama. Vandinn liggur í því að vit­laust fólk fæð­ist í réttum lík­ama,“ skrif­aði Kristján.

„Nú hefur það gerst. Ég var rek­inn úr starfi kenn­ara við End­ur­menntun Háskóla Íslands vegna ummæla minna. Í umræðu vegna ummæla minna, sem reyndar fjalla um umræðu á villi­götum, er ég sak­aður um að ráð­ast gegn trans­fólki. En ef grannt er skoðað þá hef ég ekki ráð­ist að neinum sér­stökum hóp, ég hef ráð­ist gegn umræðu­hefð. Ég hef ekki ráð­ist að neinum ein­stak­lingi. Þvert á móti er ég að reyna að bæta skiln­ing fólks á nokkrum stað­reyndum. Fyrsta stað­reyndin er sú að við erum öll sér­stök – eng­inn er sér­stak­ari en hinir. Ef ein­hver er fæddur í röngum lík­ama, þá erum við öll fædd í röngum lík­ama. Skil­grein­ingin „rangur lík­ami“ er þess eðlis að hún er í sjálfu sér röng. ,,Hvenær er maður fæddur í réttum lík­ama?“

Ég nefni hvergi í ummælum mínum neinn sér­stakan hóp. Ég vil vekja athygli á umræðu­hefð­inni sem snýst fyrst og fremst um skoð­ana­kúgun. Þeirri kúgun fylgja for­dómar og tál­sýn sem sótt er í svo­kall­aða póli­tíska rétt­hugsun.

Ég spyr: „Ef mér (Krist­jáni Hreins­syni) finnst ég vera ung­lings­stúlka á ég þá að fá sam­þykki sam­fé­lags­ins – án til­lits til aðstæðna? Ef ég seg­ist vera blindur, á ég þá að fá að vera blindur? Ef ég seg­ist vera svert­ingi, eiga þá allir að virða mig sem slíkan? Ef ég seg­ist vera lamaður á ég þá að fá hjóla­stól?“

Við erum öll hinsegin, við erum öll svona fólk. Við erum öll fædd í röngum lík­ama. Við höfum bara ekki öll náð að átta okkur á þeirri merki­legu stað­reynd.

Fólk hefur ákveðið að skilja orð mín sem árás á til­tek­inn hóp. En í þeirri árás hef ég engan þátt tekið. Ég ber engan kala til nokk­urs manns. Ég hef ekk­ert á móti neinum hópum. Trans­fólk er í mínum huga allt hið besta fólk. Ég hef akkúrat ekk­ert út á rétt­inda­bar­áttu eins né neins að setja. Reyndar er ég að sýna öllu fólki stuðn­ing með því að reyna að draga umræð­una upp úr hjól­förum heimsk­u­nnar. Ég skal aftur á móti þykja skömm fyrir að benda á þá stað­reynd að umræðan er á villi­götum!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas