Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Segir Hildi ljúga um sakleysi Bjarna Ben: „Hefur farið með sömu tugguna svona átta hundruð sinnum“

Hildur Sverrisdóttir
Hildur Sverr­is­dóttir Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Atli Þór Fanndal segir að Hildur Sverr­is­dóttir sé að rugla í almenn­ingi um sak­leysi Bjarna Bene­dikts­sonar.

Fram­kvæmd­ar­stjóri Íslands­deildar Transparency International, Atli Þór Fanndal vandar ekki Hildi Sverr­is­dóttur, þing­floks­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kveðj­urnar í nýrri Facebook-færslu. Segir blaða­mað­ur­inn fyrr­ver­andi að Hildur hafi afsakað Bjarna Bene­dikts­son í morg­un­út­varp­inu á Rás 1, „á launum hjá almenn­ingi.“ Segir hann Hildi hafa í heilt ár gert lítið úr þætti Bjarna í sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. „Hún hefur farið með sömu tugg­una svona átta hund­ruð sinnum.“ Þá hæð­ist Atli Þór að fjöl­miðlum fyrir að bjóða Hildi ítrekað í við­töl vegna máls­ins en segir svo að málið sé ekki flókið: „Hildur er að rugla í þér. Bjarni ber ábyrgð á söl­unni. Hann ber laga­lega ábyrgð og póli­tíska.“

Atli Þór segir aukreitis að það í mál­inu sé ekki flókin lög­fræði. „Keypt und­ir­lægju­á­lit Banka­sýslu um að ekki megi birta kaup­enda­lista á upp­runa sinn til til­rauna til yfir­hylm­inga.“

Að lokum segir Atli Þór að Bjarni hafi gert hell­ing rangt við söl­una. „Það sem hefur komið fram er að Bjarni sinnti ekki skyldum sínum, lagði ekki mat á til­boðin, kost­aði almenn­ing millj­arða og hefur tafið málið og neitað að taka ábyrgð.“

Hér má sjá færsl­una:

„Hildur Sverr­is­dóttir, afsak­andi Bjarna Bene­dikts­sonar á launum hjá almenn­ingi, er við­mæl­andi í morg­un­út­varp­inu á Rás 1. Hún hefur farið með sömu tugg­una svona átta hund­ruð sinnum. Hildur hefur í rúmt ár sagt aftur og aftur og aftur að hún ætli að sjálf­sögðu ekki að gera lítið úr mál­inu en gerir svo lítið úr mál­inu.

Það sem Hildur hefur fram að færa og þykir svo magnað að henni er aftur og aftur boðið í fjöl­miðla til að segja það er að málið sé rosa­lega flókið, það sé svaka­lega mikil lög­fræði í þessu og það hafi bara alls ekk­ert komið fram að hann hafi gert neitt rangt.1. Þetta er ekk­ert flókið mál. Hildur er að rugla í þér. Bjarni ber ábyrgð á söl­unni. Hann ber laga­lega ábyrgð og póli­tíska. Það er ekk­ert flókið og þótt hún og félagar hennar hafi sóað rúmu ári í að ljúga að okkur þá er þetta ekk­ert flókið.2. Það er ekk­ert flókin lög­fræði í þessu máli. Keypt und­ir­lægju­á­lit Banka­sýslu um að ekki megi birta kaup­enda­lista á upp­runa sinn til til­rauna til yfir­hylm­inga. Bjarni vissi alveg að þessir fim­leikar myndu ekki stand­ast. Það er eng­inn sem tekur þetta laga­á­lit alvar­lega. Ekki einu sinni þau sem skrifa það. Hildur er vilj­andi að rugla í þér.3. Það hefur fullt komið fram sem sýnir fram á að Bjarni gerði eitt­hvað rangt – svo notað sé tungu­tak Hildar sem virð­ist ekki hafa nokkurn móral yfir því að sópa ryki í augu þeirra sem greiða launin hennar. Álit umboðs­manns er ekki birt til að segja að hann hafi allt gert rétt. Bjarni ákvað ekki að hætta sem ráð­herra vegna þess að umboðs­maður fann ekk­ert að. Það sem hefur komið fram er að Bjarni sinnti ekki skyldum sínum, lagði ekki mat á til­boðin, kost­aði almenn­ing millj­arða og hefur tafið málið og neitað að taka ábyrgð.Þetta er ekk­ert flókið. Almenn­ingur sá í gegnum þetta mál strax á fyrstu dögum. Það á ein­fald­lega ekki að vera hægt að vera þing­maður og skilja ekk­ert í mál­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum