Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Helgi: „Varð fyrir reynslu sem kenndi mér að ég vil aldrei aftur láta annað fólk segja mér fyrir”

Helgi Áss Grétarsson.
Helgi Áss Grét­ars­son.

Helgi Áss Grétarsson, skák­meistari og lögfræðingur segir það mikil­vægara sem aldrei fyrr að fólk þori að tjá skoðanir sínar; Helgi er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar.

Segja má að Helgi hafi á undan­förnum misserum ítrekað farið gegn straumnum í skoðunum sínum:

„Ég hef mikla trú á einstaklingum og hugnast ekki sú þróun að gera einstaklinga alltaf að hluta af hóp. Þegar fólk fer of langt í hóphugsun eru öfgarnar oft stutt undan. Þá vill fólk oft fara mjög langt í dyggðar­skreytingum til þess að fá viðurkenningu frá hópnum sem það telur sig tilheyra og hikstar ekki við að kasta öllum eðlilegum viðmiðum í siðuðum samskiptum. Á ákveðinn hátt kemur þetta í staðinn fyrir trúar­brögð og er farið að líta talsvert út eins og trúar­brögð.

Maður sér oft besta fólk komið býsna langt í þessa átt. Við megum ekki gleyma því að öfga­samtök og mestu öfgar mannkyns­sögunnar hafa oft orðið til í svona andrúms­lofti. Við getum ekki bara hent þeim reglum sem við höfum komið okkur saman um ef tíðar­andinn er þannig að fólk vill fá tíma­bundnar vinsældir. Hver og einn verður að velja fyrir sig hvaða orusstum er rétt að taka þátt í, en það er mikilvægt að fólk þegi ekki bara og láti háværan hóp stýra allri umræðu.”

Helgi segir pólitíska rétt­hugsun hafa náð tökum á umhverfinu í háskólum landsins. Þar segist hann hafa lært það með árunum að ef maður lætur stöðugt undan eigin sannfæringu endi það á að maður veiki sjálfan sig og brjóti sig í raun niður:

„Það er að verða mjög skrýtin þróun í háskólunum. Pólitísk rétt­hugsun hefur náð miklum tökum á háskóla­samfélaginu. Ákveðinn hópur hefur náð að ákveða hvað má tala um og hvað ekki. Oft er komið í veg fyrir að það sé verið að ræða efnis­atriði mála og draga þannig úr sköpun. Það má ræða mjög neikvætt um suma mála­flokka og sumt fólk, en ef það væri í hina áttina yrði fólk bara grillað á teini. Prinsippið í akademísku umhverfi á að vera frjáls tjáning og frjálst flæði hugmynda.

Ég var í stuttu máli farinn að upplifa það að þetta væri alls ekki lengur þannig þegar ég starfaði í háskólunum,” segir Helgi og heldur áfram:

„Reynslan mín í háskóla­samfélaginu þegar ég var í ákveðinni stöðu þar kenndi mér að ef ég gef bara eftir minn karakter og læt undan og þegi, þá er ég að brjóta sjálfan mig niður. Gera sjálfan mig veikari. Það gengur ekki til lengdar. Ég varð fyrir reynslu sem kenndi mér að ég vil aldrei aftur láta annað fólk segja mér fyrir hvað ég á að standa eða þegja ef ég veit að það er mikilvægt að tjá sig.

Með lífs­reynslunni hef ég lært að maður verður stundum að þora að vera hugrakkur og standa með eigin sannfæringu, þó að það kosti að einhverjir verði brjálaðir og segi eitthvað neikvætt um mann. Ef maður er alltaf tilbúinn að gefa eftir eitthvað af sínum karakter til að lífið sé þægilegra, þá molnar hægt og sígandi undan skap­gerðinni og maður verður hægt og rólega að gufu sem stendur ekki fyrir neitt!”

Helgi er vara­borgar­fulltrúi fyrir Sjálfstæðis­flokkinn og segist vilja standa fyrir það í stjórn­málum að þora að vera hugrakkur og jafnvel taka óvinsælar ákvarðanir ef það er rétt til lengri tíma litið. Það sé ekki vænlegt ef stjórn­málamenn eru of uppteknir af því að sækja sér stöðugt vinsældir, þó að það kosti að gefa afslátt af sjálfu sér:

„Lausnin er ekki alltaf að auka afskipti hins opinbera og koma á nýjum ráðum og nefndum og stýrhópum. Lausnin er oft í fólkinu sjálfu, en ekki í embættis- eða stjórnmála­kerfinu. Það hefur verið mín sýn í mjög langan tíma þegar kemur að stjórn­málum. Það er mikilvægt að það sé fólk í stjórn­málum sem gefur ekki afslátt af sannfæringu sinni, þó að það sé þægilegt til skamms tíma.

Til dæmis gengur ekki að reka hið opinbera endalaust á lánum og á óábyrgan hátt. Það þýðir að stjórn­málamenn þurfa stundum að þora að taka óvinsælar ákvarðanir ef þeir vita að það er betra til lengri tíma litið. Ég vil í störfum mínum í stjórn­málum sýna það að fólk geti treyst því að ég standi með sannfæringu minni.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim