Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Þingmenn halda ítrekað fram að öyrkjum fjölgi hratt þrátt fyrir talnagögn

„Und­an­farin ár hefur öryrkjum fjölgað og eru margar ástæður sem liggja þar að baki,“ sagði Halla Signý Krist­jáns­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, í ræðu á alþingi síð­ast lið­inn mið­viku­dag. Halla er þar ein af nokkrum þing­mönnum sem haldið hafa fram að öryrkjum fjölgi hratt. Um það er þó deilt.

|Náttúruleg fjölgun á vinnumarkaði: Samtök atvinnulífsins|Unnið upp úr tölum Tryggingarstofnun Ríkisins
|Nátt­úru­leg fjölgun á vinnu­mark­aði: Samtök atvinnu­lífs­ins|Unnið upp úr tölum Trygg­ing­ar­stofnun Ríkisins Mynd: ÖBÍ

Samkvæmt tölum Trygg­inga­stofnun rík­is­ins hefur dreg­ist veru­lega úr fjölgun 75% örorku­mata.

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hélt þó öðru fram í sept­em­ber 2018. „Nýgengi öryrkja á Íslandi með yfir 75% örorku­mat er núna 1.200–1.800 á ári,” sagði Páll í umræðum um störf þings­ins. Þessi stað­hæf­ing er röng. Árið 2016 nam fjölgun slíkra örorku­mata um 700. Þá hefur hægst veru­lega á fjölgun en 2017 var fjölg­unin um 500 og í fyrra var hún komin niður í 87.

Unnið upp úr tölum Trygg­ing­ar­stofnun Ríkisins

Hafa skal í huga að ein­stak­lingar sem fara tíma­bundið á örorku, til dæmis sökum slyss eða veik­inda, hafa áhrif á töl­urnar. Þá er ekki tekið til­lit til fjölda ein­stak­linga sem kom­ast af örorku og aftur á vinnu­mark­að­inn. Til dæmis öryrkjar sem eld­ast fara af örorku­bótum þegar þeir kom­ast á elli­líf­eyri. Þessi til­færsla hefur einnig áhrif á töl­urnar.

Hélt því fram að fjölgun öryrkja væri hraðari en fólksfjölgun

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur þá haldið því fram að fjölgun öryrkja væri hrað­ari en fólks­fjölgun: „Og við ættum sömu­leiðis að taka umræðu um að það virð­ist vera sjálf­stætt vanda­mál hjá okkur Íslend­ingum að þeim sem rata inn í örorku­bóta­kerfið fjölgar hraðar en líf­fræði­leg fjölgun í land­inu er.” Þetta sagði Bjarni í ræðu um kjara­bætur til öryrkja á alþingi í nóv­em­ber 2018. Samkvæmt þessu ætti öryrkjum að hafa fjölgað um annað eins á þessum tíma.

Ef skoðað er aukn­ingu beggja hópa síð­ustu ára Þá sýna tölur Hag­stof­unnar að Íslend­ingum hefur fjölgað um 29 þús­und en öryrkjar um ríf­lega þrjú þús­und frá árinu 2009. Ummæli Bjarna eru röng.

„Nýgengi örorku í fyrsta skipti meira en náttúruleg fjölgun á vinnumarkaði“

Páll bar saman fjölgun örorku við fjölgun á vinnu­mark­aði: „Árið 2016 var nýgengi örorku í fyrsta skipti meira en nátt­úru­leg fjölgun á vinnu­mark­aði.“ Þá tók Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í sama streng í októ­ber 2018. „Það er mér veru­legt áhyggju­efni, áður en við förum lengra, að sjá að nýgengi örorku hér á landi slagar hátt upp í nátt­úru­lega fjölgun starfs­fólks á vinnu­mark­aði,”

Fjöldi á vinnu­mark­aði. Unnið upp úr tölum Hagstofu Íslands.

Þetta er heldur ekki rétt. Frá árinu 2009 hefur ein­stak­lingum á vinnu­mark­aði fjölgað um 36 þús­und. Það er hrað­ari fjölgun en líf­fræði­leg fjölgun. Þá hefur fjöldi fólks á vinnu­mark­aði vaxið umfram þá sem hafa farið á örorku síð­ast lið­inn ára­tug.

Örorku­banda­lag Íslands benti á mögu­lega upp­sprettu þess­ara stað­hæf­inga. Samtök atvinnu­lífs­ins birtu í fyrra upp­lýs­ingar af nátt­úru­legri fjölgun á vinnu­mark­aði bornar saman við fjölgun 75% örorku­þega.

Nátt­úru­leg fjölgun á vinnu­mark­aði.

Þegar skoðað er línu­ritið er mik­il­vægt að hafa í huga að þessi spá var gerð 2018 og sýna ekki raun­veru­lega þróun síð­asta árs. Eins og áður hefur komið fram þá hefur hægst veru­lega á fjölgun örorku­þega síð­ast liðið ár. Þetta graf sýnir því ekki þann sam­drátt sem hefur verið að eiga sér stað síð­ast liðin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas