Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Barðavogsmálið: „Sá annan liggja á jörðinni en hinn var að stappa á bringunni á þeim sem lá“

Photo: ja.is
Photo: ja.is Mynd: Lubbi

Líkt og fram hefur komið í fréttum í dag var aðal­meðferð í svokallaða Barða­vogsmálinu tekið fyrir í Héraðs­dómi Reykja­víkur í dag. Þar var skýrla tekin af Magnús Aron Magnússon, sem ákærður er fyrir að valda dauða Gylfa Begmanns Heimis­sonar í júní í fyrra. Einnig var rætt við vitni í málinu sem og lögregluna sem kom að því. Hér er vitnis­burður vitna:

„Ég var bara að grilla og heyri skarkala hjá húsinu við hliðinni á mínu. Ég sá ekkert en fór inn og kom svo aftur og sá þá tvo menn. Sá annan liggja á jörðinni en hinn var að stappa á bringunni á þeim sem lá. Mér sýndist hann anda ennþá. Ég hljóp inn og bað konuna mína að hringja í lögregluna og fór aftur út. Svo sá ég að maðurinn virtist hættur að anda. Bað þá konuna að biðja um sjúkrabíl líka því það leit út eins og verið væri að drepa manninn,“ sagði fyrsta vitnið sem steig í vitna­stúku en hann bjó í næsta húsi við þann ákærða.

Sagði vitnið að maðurinn sem sparkaði hafi haldið á síma en hann hafi ekki vitað hvort hann hefði verið að taka myndir, senda skilaboð eða hringja.

Aðspurður af sækjanda segist hann ekki hafa verið langt frá átökunum, ekki nema sex til átta metrum frá. Segir hann að afl hafi verið í því er sá ákærði stappaði á bringunni á þeim sem lá á jörðinni og að hann hafi stappað nokkrum sinnum á honum.

„Þegar ég kom aftur út sá ég að hann var að dangla í höfuðið á honum. Eða sparka. Í nokkur skipti. Ekki gríðarlegt afl en samt eitthvað. Hann sýndi aldrei nein viðbrögð.
Ég sá hann ekki nota hendurnar.“

„Áttarðu þig á því hvað þetta stóð lengi yfir?“

„Það voru ekki margar mínútur. Ég tók ekki tímann samt. En ég fór inn að sækja disk eða eitthvað og fer svo aftur út.“ Kannaðist ekkert við hann.

Verjandi: „Það liggur fyrir að þetta er á laugar­degi, gott veður, þú að grilla. Varstu ekki búinn að drekka?“ Vitnið svaraði því neitandi.
„Mannstu þetta vel?“ „Já, ég man þetta mjög vel,“ svaraði vitnið.

Þá steig eiginkona vitnisins í stúku og sagði frá sinni hlið: „Ég var að horfa á fréttirnar þegar maðurinn minn kom inn og bað mig að hringja í lögregluna. Ég geri það. Síðan kemur hann fljótlega aftur og biður mig um að biðja um sjúkrabíl því hann haldi að það sé verið að drepa mann. Ég kem svo út og sé mann sparka í höfuðið á liggjandi manni og efri hluta líkamans. Annar er liggjandi hreyfingar­laus á jörðinni og hinn að sparka i hann. Sá mörg spörk. Það var af afli. Ég sá enga hreyfingu á þeim liggjandi.“ Sagðist hún svo ekki hafa getað horft á meira og farið inn aftur.

Dómari spyr: „Þú segist hafa séð þetta en ekki alveg getað horft á þetta? Ég er alveg viss um þetta, ég sá allt í einhvern tíma en fór svo inn.“

Þriðja vitnið var kallað í stúku: „Sko það sem ég sá þegar ég kem niður er sem sagt maður að pota í annan mann, sparka í annan mann sem er liggjandi. Sá sem er að sparka er með símann á lofti. Ég veit ekki hvað hann var að gera með hann samt.“

Sækjandi: „Geturðu lýst potinu?“

Vitnið: „Ég horfi ekki lengi á þetta en það var eins og hann væri að pota í hann með löppinni.“

„Hreyfðist hann?“

Vitnið: „Ekki svo ég viti,“ svaraði vitnið og sagðist ekki hafa séð hversu oft hann potaði eða sparkaði í hann né hvar.

„Sástu eitthvað meira?“

Vitnið: „Aðallega bara endur­lífgunar­tilraunir og hand­tökuna.“

Verjandi: „Pota eða sparka segirðu? Í skýrsla­tökunni daginn eftir ertu meira á því að þetta hafi verið pot, frekar en spark. Þú talar ítrekað um að pot.“

Vitnið segist ekki viss með það í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim