Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Rithöfundur á villigötum klukkutímum saman við Hljóðbókasafnið – „Bjössi farinn að drekka aftur?!“

Björn Þorláksson.
Björn Þor­láks­son.

Frétta­mað­ur­inn og rit­höf­und­ur­inn, Björn Þor­láks­son, lenti í miklum ógöngum fyrir skömmu. Björn er nýbú­inn að gefa út sögu sína, Besti vinur aðal, og hefur verið á þeyt­ingi við að kynna bók sína. Hann var fyrir nokkru að lesa inn lokakafla bók­ar­innar á hljóð­bók fyrir sjón­skerta þegar ósköpin dundu yfir.

„Í viku hef ég dregið að segja nokkrum manni frá því sem gerð­ist í Kópa­vog­inum síð­ast­lið­inn föstu­dag eftir að ég kláraði að lesa inn bók­ina. Ég hef farið með þá reynslu eins og manns­morð vegna þess að á vondum degi þá skamm­ast ég mín fyrir að vera eins og ég er,“ skrifar Björn á Facebook ogh seg­ist svo vilja nota húmor­inn gegn eigin röskun og rösk­unum ann­arra.

„Ég gekk sumsé út úr Hljóð­bóka­safni Íslands síð­ast­lið­inn föstu­dag eftir að hafa leik­lesið kafla upp úr sam­tali mínu við Brynjar Níelsson og glímt við’ margar aðrar áskor­anir í upp­lestr­inum á Besti vinur aðal. Leik­ara­mennt­aður er ég ekki og kannski þarf ég að hafa meira fyrir verki eins og þessu fyrir vikið. Og haus­inn á mér er eins og hann er. En ég sumsé klára djobbið, geng út úr safn­inu og kveð. Stoppa fyrir utan. Tel mig hafa ein­hverja hug­mynd um að hvar ég lagði bílnum. Geng í suður en finn engan bíl. Geng lengra og lengra,“ segir Björn sem hrakt­ist í leit sinni yfir í næsta sveit­ar­fé­lag og stressið að gerta út af við hann. Það hvarfl­aði að honum að bif­reið­inni hefði verið stolið.

„Ég tek upp lykla­kipp­una og ýtti á hana út og suður um margra klukku­stunda skeið þar sem ég beini kipp­unni í allar áttir. Ef ske kynni að í fjarska kinki bíll kolli og blikki ljósum. Minn eigin bíll,“ skrifar hann og er tek­inn að efast um að hann hafi komið á bíl.

Hann gekk í norður, svo vestur, leitar og leitar.

„Ég rekst meðal ann­ars á kunn­ingja minn. Hann vill ræða bók­ina eða fram­boðið. „Nei, ég er að leita að bílnum mínum,“ segi ég áhyggju­fullur og vin­ur­inn horfir enn áhyggju­fyllri á eftir mér. „Bjössi far­inn að drekka aftur?!“.

Eftir margra klukku­stunda leit fann Björn loks­ins bif­reið sína.

„Það var ekki fyrr en ég reri í austur og reri hug­anum með slitnum árum lengi, lengi, lengi sem ég af til­viljun fann loks bíl­inn minn. Hálfur dag­ur­inn far­inn – og ekki sá fyrsti sem þannig fór og ekki sá síð­asti,“ skrifar Björn sem leggur vænt­an­lega á minnið næst hvar hann lagði bif­reið sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn