Alfreð Erling Þórðarson sem er ákærður fyrir að hafa banað hjónum í Neskaupstað síðasta sumar neitaði sök þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Austurlands fyrr í dag en RÚV greindi frá því.
Hann var einnig ákærður fyrir brjóta vopnalög vegna hnífaburðar. Þrátt fyrir að hafa viðurkennt að hafa verið með hníf á sér neitaði hann fyrir að hafa brotið lög. Þá hafnaði hann bótakröfu. Samkvæmt RÚV fór þingfestingin fram í gegnum fjarfundarbúnað.
Þinghald verður haldið 16. janúar næstkomandi en ekki liggur fyrir hvenær aðalmeðferð hefst.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir