Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Jana Napoli vill lesa lófa eitt prósent Íslendinga – Frú Vigdís Finnbogadóttir afþakkaði lófalestur

Alkastið er nýjasta afsprengi hlað­varpssam­steypunar Þvotta­húsið. Alkastið sem sam­anstendur af spyrl­unum Gunnari Dan Wiium og Arnóri Jónssyni, ásamt tækni­tröll­inu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu mál­efnin sem verða tekin fyrir vera eld­fim sem og létt­væg í bland.

Nýjasti gestur Alkast­ins er Jana Napoli. Janna, 77 ára kona frá New Orleans, sem frá tólf ára aldri hefur lesið í lófa. Hún segir í við­tal­inu hvernig hún fyrir rælni rakst á bók þar sem lófa­lestur var útskýrður og um leið fann hún að ekki væri aftur snúið. Hún segir að hend­urnar segja til um hver þú ert í raun og veru, eins og gluggi inn í sál­ina. Hún segir að fljót­lega eftir getnað byrji ferli í lófa og fingrum sem lýsa sér þannig að línur mynd­ast sem segja til hvaðan þú ert að koma. Smátt og smátt eftir því sem ald­ur­inn fær­ist yfir bæt­ast svo við ein­kenni sem kannski er hægt að lýsa sem afleið­ing félags­legrar mót­unar.

Jana Napoli

Hún hefur síð­ustu fimm ár komið reglu­lega til Íslands í þeim til­gangi að lesa nógu marga lófa Íslend­inga en hún stefnir á lesa eitt pró­sent þjóð­ar­innar. Hug­myndin er að tskrifa bók um hendur Íslend­inga. Verk­efnið ber heitið Hands of Iceland og má finna það hér https://www.facebook.com/handsoficeland.

Hún von­ast til þess að verk­efnið klárist og verði útgefið á prenti innan þriggja ára.Jana horfði á hendur Gunnars þátt­ar­stjórn­anda og sér að hann hefði átt að vera örv­hentur en í gegnum mótun og umhverfi ekki fengið það fram en fram að þessu hafði Gunnar alltaf skil­greint sig sem rétt­hentan. Þetta sagð­ist hún sjá þegar hann kross­legur fingur sína og sér að hann lagði sífellt vinstri þum­al­inn yfir þann hægri sem er skýr vís­bend­ing um hið raun­veru­lega örv­henta eðli Gunnars.

Jana las í lófa Arnórs og sá þar diplómat­íska þumla og sagði að það benti til þess að hann gæti talað sig úr nán­ast hvaða aðstæðum sem er. Að auki benti langur baug­fingur til mik­ils testó­steróns og keppn­is­skaps. Þar sem Arnór er rétt­hentur og ekki í neinni afneitun með það, er vinstri höndin á honum teng­ing hans við for­feð­urna. Þar sá hún mikið sjálf­stæði og vilja til frelsis.

Jana les í lófa

Á ferð sinni um Ísland var Jönu boðið með íslenskri vin­konu sinna í Ayahuasca athöfn með frum­byggjum suður Ameríku fyrir utan Reykja­vík. Hún lýsir reynslu sinni sem skemmti­legri og athygl­is­verðri þar sem hún upp­lifði mikla liti og alls konar form en að öðru leiti frekar lát­laust. Hún seg­ist hafa fylgst með þeim í kringum sig kastandi upp og grát­andi en hún sagð­ist alls ekki hafa fengið neina þannig upp­lifun sjálf. Henni seg­ist hafa brugð­ist tals­vert þegar frum­byggj­anir settu í hana ein­hvers konar augn­dropa sem voru svo sterkir að hún hélt að augun ætl­uðu hrein­lega úr augn­tóft­unum. Einnig blésu þeir sér­stöku tóbaki í nas­irnar á henni og er Gunnar spurði hver til­gang­ur­inn væri með þessum efnum þá sagð­ist hún hrein­lega ekki hafa hug­mynd um til­gang þess.

Þegar hún var spurð út hver hún héldi að til­gangur þess­ara hug­víkk­andi ferða­laga væri sem tröll­ríður hinum vest­ræna heim um þessar mundir sagði hún að til­gang­ur­inn væri að byggja brýr milli hægra og vinstra heila­hvelis; ein­fald­lega ryðja burt þessum filter eða þessum for­ritum sem mynd­ast í vit­und manns­ins í oft á tíðum að virð­ist vit­firrtu sam­fé­lagi.

Arnór spurði Jönnu hvort hún væri með ein­hverja lófa sem hún vildi lesa fram yfir aðra og hún sagði að efst á bucket list­anum væru hend­urnar hennar Vigdísar Finn­boga­dóttir. Því miður fyrir Jönu vildi Vigdís ekki taka þátt í verk­efn­inu þrátt fyrir að hafa vera spurð. Jana hefur lesið í lófa Dali Lama, Oprah Winfrey og Bill Clinton og segir hún að það hefði verið stór­merki­legt að lesa í lófa Bill Clintons. Hún sagði hann vera mikið partýljón sem lýsir honum eflaust best enda þekktur sem mik­ill gleði­gosi þó svo að hann hafi hér á sínum tíma neitað því eðli sínu í frægri við­tali hér um árið.

Þáttinn má sjá og heyra á öllum helstu hlað­varpsveitum jarðar ásamt að hann má sjá í heild sinni hér á spil­ar­anum fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar