Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ragnar Þór sakar Samtök atvinnulífsins um sturlun

Formaður VR hjólar í Samtök atvinnu­lífs­ins.

xx
xx

Fram­ganga Samtaka atvinnu­lífs­ins opin­berar ekki aðeins sturlað við­horf, heldur eru sam­tökin með fjar­stæðu­kenndan áróður. Þessu lýsir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, blákalt yfir í ítar­legri færslu á Facebook-síðu sinni í dag.

Þar birtir Ragnar Þór þær tölur sem hafa verið uppi á borðum og segir hvað í þeim felist að hans mati. Til að mynda segir Ragnar Þór að full­yrð­ingar um að kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar feli í sér 60 til 85% launa­hækk­anir séu afar langsóttar. Tilboð SA þýði aftur á móti í raun kjara­rýrnum. Sem dæmi sé til­boð upp á 2,5% launa­hækkun í raun launa­lækkun í 3,6% verð­bólgu.

Hér er fyrir neðan má lesa færslu Ragnars Þórs:

Tilboð SA til félags­manna VR.
15.000 kr. Á laun undir 600.000 kr. Og 2,5% á laun umfram það. ATH. Ekki 20.000 kr.!!
Sérstök 5.000 kr. Hækkun á lægstu taxta sem eru í dag 270.408 kr.
Verð­bólgu­spá fyrir 2019 er 3,4 til 3,6%.
Á meðan lýð­skrumarar og aðrir lobbí­istar sér­hags­muna tala um nútíma hag­fræði, kulnun í hag­kerf­inu eða skrum­skæla kröfu­gerðir verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar eins og kom fram í mál­flutn­ingi SA í gær þá er rétt að benda á nokkrar stað­reyndir.
Tiilboð SA til megin þorra félags­manna VR felur í sér kaup­mátt­arrýrnun!
2,5% hækkun launa í 3,6% verð­bólgu er ekki ábyrg nálgun í kjara­við­ræðum!
15.000 kr. Hækkun á laun undir 600.000 eru 8.975 kr. Útborgað!
Leigu­fé­lögin eru byrjuð að hækka leigu um tugi þús­unda og dæmi er um ein­stæða móður sem fékk bréf frá Almenna leigu­fé­lag­inu þar sem til­kynnt var um 20.000 kr. Hækkun á leigu í nýjum árs samn­ingi. SA býður þessum félags­manni VR 8.975 kr. upp í þann kostnað. Mis­mun­ur­inn er 11.025kr. sem uppá vantar.
SA vill nálg­ast málin af meiri ábyrgð og býður félags­mönnum VR 2,5% á meðan laun banka­stjóra Lands­bank­ans hækk­uðu um 82%.
SA vill nálg­ast málin af meiri ábyrgð og býður félags­mönnum VR 2,5% á meðan laun Alþing­is­manna og æðstu emb­ætt­is­manna hækk­uðu um 45% og yfir.
SA vill nálg­ast málin af meiri ábyrgð og býður félags­mönnum VR 15.000 kr. á meðan laun fram­kvæmda­stjóra SA munu hækka um 90.000 kr. Samkvæmt sama til­boði.
Stjórn­völd og SA tala um kólnun í hag­kerf­inu, ábyrgð og svig­rúm á meðan laun banka­stjóra Lands­bank­ans hækka um 1.700.000 kr. Á mán­uði, eða 82%, og þykir sú hækkun hóf­leg í núver­andi árferði að mati stjórn­enda bank­ans.
Í kröfu­gerð VR er sama krónu­tölu­hækkun á alla og að lægstu laun hækki úr 300.000 kr. Í 425.000 kr á mán­uði á þremur árum.
Full­yrð­ingar SA um að krafa okkar sé 60 til 85% á öll laun er svo fjar­stæðu­kenndur áróður að hann er varla svara­verður en hlýtur að opin­bera sturlað við­horf við­semj­enda okkar til kröfu­gerð­ar­innar og stöð­unar á vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas