Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Enn leitað að Magnúsi Kristni: „Hrædd um að hugsanlega sé hann í fangelsi eða á sjúkrahúsi“

Ekkert hefur heyrst frá Magnúsi Kristni Magnússyni síðan 10. september. Mynd/skjáskot
Ekkert hefur heyrst frá Magnúsi Kristni Magn­ús­syni síðan 10. sept­em­ber. Mynd/skjá­skot

Enn er leitað að Magnúsi Kristni Magn­ús­syni, 36 ára íslenskum karl­mann sem ekki skil­aði sér í flug frá Dóminíska lýð­veld­inu 10. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Magnús ferð­að­ist frá Spáni 3. sept­em­ber síð­ast­lið­inn til höf­uð­borgar Dóminíska lýð­veld­is­ins, Santa Domingo. Svo segir í frétt á Rúv.is sem jafn­framt náði tali af systur Magnúsar, Rann­veigu Karls­dóttur.

„Hann hefur alveg skot­ist út. Hann er frá­skil­inn á það til að skella sér óvænt til útlanda,“ svarar Rannveig aðspurð hvort það sé honum líkt að ferð­ast án þess að láta af sér vita. Rannveig segir samt atburða­rás­ina núna óvenju­lega sökum þess að hann haldi ávallt sam­bandi við fjöl­skyld­una.

Útiloka ekki neitt

Rannveig og fjöl­skylda Magnús vita ekki frek­ari skil á hvers vegna leið hans lá til Dóminíska lýð­veld­is­ins: „Við erum kannski svo­lítið hrædd um að hugs­an­lega sé hann í fang­elsi eða á sjúkra­húsi, við erum að vona eitt­hvað slíkt“.

„Er eitt­hvað í sögu hans sem gerir það að verkum að ykkur grunar að ein­hverjir séu á eftir honum?“ spyr Arnar Björns­son blaða­maður RÚV.

„Maður getur aldrei úti­lokað það. Við vitum það ekki og vonum ekki. Miðað við það litla sem við höfum heyrt þaðan að þá virð­ist það ekki hafa verið. Svo segja okkur aðrir sem þekkja til þarna úti að auð­velt sé að rata í vand­ræði hitti maður rangt fólk,“ svarar Rannveig.

Tvær óstaðfestar vísbendingar

Í sam­tali við DV segir Rannveig að tvær vís­bend­ingar hafi komið upp á yfir­borðið síð­ast­lið­inn sól­ar­hring. Önnur sú að hugs­an­lega sé far­angur Magnúsar Kristins enn á flug­vell­inum og hin að 12. sept­em­ber, tveimur sól­ar­hringum eftir að síð­ast heyrð­ist frá Magnúsi hafi hugs­an­lega verið hreyf­ing inni á einum sam­fé­lags­miðli hans.

Rannveig setur varnagla á og segir: „Þetta er þó enn með öllu óstað­fest.“

Óendanlega þakklát

Viðbrögð fólks létu ekki á sér standa eftir hjálp­ar­kall Rann­veigar á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook í gær. Undir lok sam­tals­ins segir Rannveig:

„Ég er þakk­lát öllum þeim fjöl­mörgu sem vilja hjálpa okkur við leit­ina. Við höfum fengið boð um aðstoð úr öllum áttum. Ekki bara frá Íslandi heldur frá Dóminíska lýð­veld­inu og alls staðar að úr heim­inum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar