Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Nýjasta örsaga Illuga:„„Alí!“ og svo féllust þeir í faðma og röbbuðu saman á hljómfagurri arabísku“

Bílaverkstæði
Bíla­verk­stæði Mynd: Artem Podrez – Pexels.com

Illugi Jök­uls­son skrif­aði fal­lega örsögu í morg­unsárið og birti á Facebook.

Illuga Jök­uls­syni, rit­höf­undi og fjöl­miðla­manni, er margt til lista lagt en eitt af því eru örsögur sem hann birt­ist reglu­lega á Facebook en oftar en ekki koma blessuð börnin við sögu en það er þó ekki algilt. Það er aldrei að vita nema örsög­urnar endi í bók ein­hvern tíma enda slá þær yfir­leitt í gegn hjá les­endum hans.

Í nýj­ustu örsög­unni, sem birt­ist í morgun, skrifar Illugi um bíla­verk­stæði og bræðra­þel þeirra sem vinna á slíkum verk­stæðum, jafn­vel þó þeir vinni á sitt­hvoru bíla­verk­stæð­inu. Örsöguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Bíla­verk­stæðin við Smiðju­veg­inn voru að vakna til lífs­ins rétt fyrir átta og menn að tín­ast til vinnu. Það var kalt í lofti en snjór­inn sem lá yfir öllu virt­ist næstum hlý­legur þar sem hann breiddi sig yfir bíla í alls­konar ásig­komu­lagi fyrir utan verk­stæðin, dekkja­stæður og ónýtar vélar. Lauflétt bens­ín­lykt blakti fyrir hornið á ryðg­uðum gámi og hvísl­aði að mér orð­inu „alt­ernator“ þar sem ég stóð og beið eftir leigu­bíl en þung lykt af smur­olíu svar­aði þurr­lega „knastás“. Maður dúð­aður í úlpu gekk frekar kulda­legur í átt að einu verk­stæð­inu en annar öllu létt­klædd­ari dró hann brátt uppi, brosmildur og glaður í kuld­anum kall­aði hann: „Alí!“ og svo féllust þeir í faðma og röbbuðu saman á hljóm­fag­urri arab­ísku áður en þeir skildu aftur og fóru hvor inn á sitt verk­stæðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Sjálfvirkt brunavarnakerfi sprautaði vatni yfir matsöluskála á skíðasvæði í Kína. Enginn slasaðist en loka þurfti skálanum tímabundið.
Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027