Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fullir bílstjórar gerðu farartæki sín óökuhæf með aksturslagi sínu

Umferð í Reykjavík
Umferð í Reykja­vík Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Shutterstock

Lögreglu barst tilkynning um yfir­standandi innbrot í apóteki en greint er frá þessu í dagbók lögreglu í nótt og í gærkvöldi. Þegar lögreglu­menn komu á vettvang hafði gerandinn yfirgefið staðinn en tilkynnandi fylgdi honum eftir. Maðurinn reyndi að komast undan á bifreið og hófst eftirför lögreglu í kjölfarið.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu ók maðurinn með hættu­legum hætti eftir akbrautum og göngu­stígum áður en hann stöðvaði bifreiðina á göngustíg í Fossvogi. Þaðan reyndi hann að flýja á fæti en var stöðvaður eftir stuttan eltingar­leik og hand­tekinn. Hann var vistaður í fanga­klefa og er málið til rann­sóknar.

Lögregla sinnti einnig útkalli vegna tilkynningar um ungmenni sem höfðu klifrað upp á þak byggingar. Rætt var við ungmennin á vettvangi. Þá var brugðist við tilkynningu um slagsmál milli tveggja einstaklinga og var það mál afgreitt á staðnum.

Tveir ökumenn voru hand­teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna. Annar þeirra reyndist bæði ölvaður og undir áhrifum fíkniefna en hinn var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Báðir voru fluttir á lögreglustöð í hefð­bundið ferli og látnir lausir að því loknu.

Lögreglu bárust einnig tvær tilkynningar um eldsvoða. Annars vegar kviknaði í bifreið en hins vegar varð eldur laus í íbúð. Enginn var í íbúðinni þegar bruninn varð og urðu einungis minni­háttar skemmdir. Slökkvilið reykræsti íbúðina og eru bæði bruna­málin til rann­sóknar.

Þá varð umferðar­slys á stofn­braut þar sem tvær bifreiðar rákust saman. Báðar bifreið­arnar voru óökuhæfar eftir áreksturinn en engin slys urðu á fólki. Fljótlega vaknaði grunur um að ökumenn beggja bifreiða væru í annarlegu ástandi. Þeir voru báðir hand­teknir og vistaðir í fanga­klefa vegna rann­sóknar málsins.

Að auki var ökumaður stöðvaður sem reyndist sviptur ökuréttindum. Málið var afgreitt með gerð umferðar­skýrslu á vettvangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim