Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Segir þingið ræða áfengi í búðir „tímunum saman“ en keyra frumvarp um þungunarrof í gegn

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, segir vel­ferð­ar­nefnd hafa hafnað beiðni hans um að kalla land­lækni fyrir nefnd­ina vegna frum­varps um þung­un­ar­rof.

„Hvernig stendur á því að þegar maður leggur fram ósk í vel­ferð­ar­nefnd um að fá land­lækni til að ræða þær 22 vikur sem eru í fóst­ur­eyð­ing­ar­frum­varp­inu að meiri hlut­inn segir nei, það sé búið að ræða það alveg nógu mikið?“ spurði Guð­mundur þing­heim í gær.

Hann segir óskilj­an­legt að þing­heim liggi svo á að ekki megi kalla land­lækni til. „Sami meiri hluti og hefur full­yrt hér að ekki sé hægt að bjarga fóstri undir 22 vikum. Stað­reyndin er sú að hægt er að bjarga 6% fóstra undir 22 vikum. Síðan var einnig lögð fram beiðni um að fá tvo lækna fyrir nefnd­ina. Því var hafnað.“

Frumvarp um þung­un­ar­rof er nú í þriðju umræðu á þingi. Fylk­ingar hafa mynd­ast á þingi með og á móti mál­inu. Helst er umdeild sú grein frum­varps­ins sem heim­ilar eyð­ingu fóst­urs á tutt­ug­ustu og annarri viku þung­unar.

„Mér er gjör­sam­lega óskilj­an­legt af hverju í ósköp­unum fólki liggur svo lífið á að koma þessu máli í gegn að það megi ekki ræða það betur. Við ræðum hérna tímunum saman um áfengi í búðir, en við ætlum að keyra þetta mik­il­væga mál í gegnum þingið liggur við án nokk­urrar umræðu. Í þessu máli er líka annað, um börn sem verða þunguð. Þar segir í einni grein að börn sem verða þunguð, komin allt að 22 vikum, geti farið í fóst­ur­eyð­ingu án þess að tala við for­eldra sína. Hvar er stuðn­ing­ur­inn? Hvernig á að tryggja það? Þarf ekki að ræða þetta betur? Nei, ekki að mati meiri hlut­ans í nefnd­inni,“ sagði Guð­mundur við þing­heim.

Hann segir skammar­legt að þingið skuli ekki vanda sig betur við laga­setn­ing­una. „Mér finnst það alveg til hábor­innar skammar að við skulum ekki vanda okkur betur við þetta mál og ræða það betur vegna þess að við erum að byrja á öfugum enda. Við eigum að byrja á því að sjá til þess með öllum ráðum að engin kona þurfi að standa frammi fyrir því að fara í fóst­ur­eyð­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas