Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Páfinn eftir að leyniskytta drap mæðgur á Gaza: „Þetta eru hryðjuverk“

Nahida og Samar.
Nahida og Samar.

Tvær kristnar konur, eldi móðir og dóttir hennar, voru skotnar til bana af leyniskyttu Ísra­els­her í gær, á lóð kaþ­ólskrar kirkju í Gaza-borg, sam­kvæmt til­kynn­ingu lat­ínska
Patrí­arka­veld­is­ins í Jer­úsalem. Francis Páfi kallar hernað Ísraela hryðju­verk.

„Um hádegi í dag myrti leyniskytta Ísra­els­hers tvær kristnar konur innan sóknar Holy Family-sókn­ar­innar á Gaza,“ segir í til­kynn­ing­unni í gær en í sókn­inni hafa kristnar fjöl­skyldur leitað skjóls frá því að stríðs­á­tök Hamas og Ísrael hófst 7. októ­ber. „Nahida og dóttir hennar Samar, voru skotnar og drepnar þar sem þær gengu að Systraklaustr­inu. Önnur þeirra var drepin þar sem hún reyndi að bera hina í skjól.“

Tekið er skýrt fram í til­kynn­ing­unni að engin við­vörun var gefin áður en skotárásin hófst. „Þær voru skotnar í köldu blóði innan lóðar sókn­ar­innar, þar sem engir stríðs­menn leynd­ust.“

Sjö fleiri særð­ust í skotárásinni, er þau reyndu að vernda aðra, stóð einnig í til­kynn­ing­unni. „Þetta er mark­viss dauða­her­ferð yfir jóla­há­tíð­ina á elsta kristna sam­fé­lagi heims,“ Hammam Farah, skyld­menni mæðgn­anna sem drepnar voru, í yfir­lýs­ingu á X-inu.

Blaða­maður Al Jazeera, Hani Mahmoud, sem starfar á Rafah í suð­ur­hluta Gaza, sagði að kirkjan, sem hýsti kristna menn á Gaza, hafi síð­ustu daga verið skot­mark í sprengju­árásum Ísraela. „Stór partur af kirkj­unni hefur verið eyði­lagður. Leyniskyttur skjóta á allt sem hreyf­ist í garð­inum,“ segir Mahmoud.

Í til­kynn­ingu kirkj­unnar segir að þrjú skot frá ísra­elskum skrið­dreka hefðu einnig hæft klaustrið í góð­gerð­ar­sam­tök­unum Sisters of Mother Teresu, og eyði­lagt rafal og elds­neyt­is­birgðir þess og gert bygg­ingu sem hýsti 54 fatl­aða ein­stak­linga óbyggi­lega.

„Hinir 54 fötl­uðu ein­stak­lingar eru nú á ver­gangi og hafa ekki aðgang að önd­un­ar­vélum sem sumir þeirra þurfa til að lifa af.“

Samkvæmt frétta­stofu Vatík­ans­ins særð­ust þrjár mann­eskjur í þeirri árás. „Þau 800 sem enn eru eftir að kristnu fólki á Gaza, eru nú á barmi útrým­ingar. Þeir hafa gert þessu sam­fé­lagi lífið mjög erfitt,“ sagði Mahmoud.

Í dag sagð­ist Francis Páfi harma drápin á mæðg­un­unum og gaf í skyn að Ísrael væri að not­ast við „hryðju­verka“taktík á Gaza.

„Ég held áfram að fá alvar­legar og sárs­auka­fullar fregnir frá Gaza,“ sagði Francis í viku­legri bæna­stund hans. „Óvopn­aðir borg­arar eru skot­mörk sprengju- og skotárása. Og þetta gerð­ist jafn­vel innan lóðar Holy Family-sókn­ar­innar, þar sem engir hryðju­verka­menn eru,  aðeins fjöl­skyldur, börn, fólk sem er veikt og fatlað, nunnur.“ Francis páfi sagði tvær konur hefður verið drepnar af „leyniskyttum“ og vitn­aði í til­kynn­ingu frá Patrí­arka­veld­inu, um að nunnaklaustrið af þeirri reglu sem Móðir Teresu stofn­aði, hafi skemmst eftir skrið­dreka­árás Ísra­els­hers. „Sumir myndu segja „Þetta er stríð. Þetta eru hryðju­verk“. Já, þetta er stríð. Þetta eru hryðju­verk,“ sagði Páfinn en þetta er í annað skiptið á innan við mánuð sem Francis Páfi notar orðið „hryðju­verk“ þegar hann var að tala um fréttir frá Gaza.

Þann 22. nóv­em­ber sagði Páfinn, eftir að hafa hitt í sitt­hvoru lagi, ísra­elska ætt­ingja gísla sem eru í haldi Hamas-liða og palest­ínska ætt­ingja Gaza búa: „Þetta er það sem stríð gera. En hér höfum við farið út fyrir stríð. Þetta er ekki stríð. Þetta eru hryðju­verk.“

Fréttin er unnin upp úr frétt Al Jazeera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

„Við erum að skapa framandi verur“

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest