Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Málið er ekki nýtt og ekki tilkomið vegna Covid-19 veirunnar“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sá sig knúna til að leið­rétta þann mis­skiln­ing að frum­varps henn­ar um áfeng­is­versl­un á net­inu sé nýtt og til­komið vegna útbreiðslu COVID-19. Áslaug birti langa færslu um málið á sam­fé­lags­miðlum.

Áslaug Arna ssagði í síð­ustu viku að á tímum COVID-19 og sam­komu­banns væri sér­stak­lega þörf á lög­legri net­verslun með áfengi. „Ef ein­hvern­tíman væri þörf fyrir lög­lega net­verslun með áfengi,“ skrif­aði hún á Twitter. Færslan fór öfugt ofan í margt fólk og Erna Reyn­is­dóttir,  fram­kvæmda­stjóri Barna­heilla, skrif­aði til að mynda opið bréf til hennar.

„Nú er brýnt að við sem sam­fé­lag finnum allar þær jákvæðu leiðir sem fyr­ir­finn­ast til að vinna saman á þessum tímum og að aðstoða allt sam­fé­lagið í gegnum erf­iða stöðu vegna Covid 19. Ef ein­hvern tím­ann er þörf fyrir að standa með börnum, þá er það núna,“ skrif­aði Erna meðal ann­ars.

Aðrir sök­uðu Örnu um að nýta sér erfitt ástand. „Alveg beið maður eftir því að þú myndir nýta þetta skelfi­lega ástand á Íslandi og í heim­inum til að reyna að koma þessu frum­varpi þínu á fram­færi. Sið­leysið er algjört og virð­ist enga enda taka,“ skrif­aði einn net­verji við færslu hennar á Twitter.

Aukin umfjöllun sökudólgurinn

Áslaug skrifa um umræð­una sem hefur skap­ast í kringum frum­varpið und­an­farna daga í færslu sem hún birti í gær. „Málið er ekki nýtt af nál­inni þótt af umræð­unni mætti ætla að svo væri. Málið var unnið í haust, til­búið í byrjun árs og fór í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í febr­úar,“ skrifar Áslaug.

„Því fer fjarri að það sé til­komið vegna þess alvar­lega ástands sem nú hefur skap­ast í sam­fé­lag­inu. Þessa mis­skiln­ings kann að gæta því að fjöl­miðlar hafa að und­an­förnu fjallað um málið og eftir að bent hafði verið á ólög­lega sölu áfengis á Twitter sagði ég á sama vett­vangi að það væri kom­inn tími til að hafa þetta lög­legt,“ bendir Áslaug á. Hún bætir við að í kjöl­farið hafa veit­inga­menn, inn­lendir aðilar og brugg­hús vakið athygli á því að frum­varpið gæti orðið til þess hægt væri að halda rekstri gang­andi í erf­iðri stöðu sem nú blasir við vegna útbreiðslu COVID-19.

„Því fer fjarri að það sé til­komið vegna þess alvar­lega ástands sem nú hefur skap­ast í sam­fé­lag­inu.“

Áslaug telur svo upp nokkur atriði sem hún vill koma á fram­færi: „Málið er ekki nýtt og ekki til­komið vegna Covid-19 veirunnar. Málið er ekki for­gangs­mál heldur eitt af fjöl­mörgum málum á mínu borði,“ telur hún meðal ann­ars upp.

Færslu hennar má sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas