Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Pawel vill afnema tollafgreiðslu með ESB-aðild

„Væri ekki frábært að losna við þetta vesen?“

Pawel gagnrýnir háan aukakostnað við netverslun erlendis frá
Pawel gagn­rýnir háan auka­kostnað við net­verslun erlendis frá Horfir til ESB til að lækka kostnað við net­verslun Mynd: Facebook/Pawel Bartoszek

Pawel Bartoszek, stærð­fræðingur og þingmaður, hvetur til þess að Ísland gangi í Evrópu­sambandið til að liðka fyrir netverslun lands­manna. Í nýjum pistli vekur hann athygli á þeim mikla auka­kostnaði og tolla­veseni sem mætir Íslendingum þegar þeir panta vörur erlendis frá.

Hann bendir á að samkvæmt reiknivél Póstsins geti hliðar­kostnaður vegna virðis­aukaskatts, umsýslu og sendingar numið rúmum 2.600 krónum fyrir vöru sem kostar upphaf­lega 5.000 krónur í erlendri netverslun. Kostnaðurinn getur því fljótt numið rúmlega helmingi af kaup­verðinu sjálfu.

„Hver kannast ekki við að panta eitthvað á netinu og þurfa svo að borga meira eftir að varan kemur til landsins?“ spyr Pawel í pistli sínum.

EES-samningurinn dugir ekki til

Þótt sumar stærri erlendar netverslanir séu farnar að innheimta íslenskan virðis­aukaskatt fyrirfram breytir það ekki grunn­vandanum að mati Pawels. Hann minnir á að þótt Ísland sé hluti af Evrópska efnahags­svæðinu (EES), standi landið utan tolla­bandalags Evrópu­sambandsins.

Vegna þessa þurfa vörur sem koma frá Evrópu enn að fara í gegnum hefð­bundna toll­afgreiðslu hér á landi, jafnvel þótt enginn tollur leggist á vöruna sjálfa. Þessu fylgja óhjá­kvæmileg umsýslu­gjöld og tafir.

Pawel dregur upp þá sýn að með fullri aðild að Evrópu­sambandinu gætu Íslendingar átt í beinum og hindrunar­lausum viðskiptum við gríðar­stóran markað.

„Væri ekki frábært ef við gætum fengið vörur frá 450 milljóna manna markaði sendar til okkar án alls þessa auka kostnaðar og vesens?“ spyr Pawel að lokum og ljóst er að hann telur svarið liggja í nánara Evrópu­samstarfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim