Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Brotist inn hjá Samstöðinni – Forystufólk Sósíalistaflokksins oft fengið hótanir um meiðingar

Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson
Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson

Innbrot var framið í hús­næði Sam­stöðv­ar­innar, sem er fjöl­mið­ill Sós­í­alista­flokks­ins, í nótt og þaðan flest öllu tækjum stolið. Þá voru kaplar eyði­lagðir í inn­brot­inu. Dagskrá Sam­stöðv­ar­innar liggur niðri næstu daga hið minnsta.

„Svo sem allt sem við áttum var tekið og svo var annað eyði­lagt,“ segir Gunnar Smári Egilsson rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar í sam­tali við Sam­stöð­ina. „Þetta voru mynda­vélar, linsur, hljóð­mix­erar og annað sem við höfum safnað upp á löngum tíma. Ætli tapið séu ekki nokkrar millj­ónir í pen­ingum talið. Sam­stöðin er rekin fyrir styrki og stuðn­ing hlust­enda í gegnum Alþýðu­fé­lagið og á enga digra sjóði að sækja í.“

Fram kemur á vef Sam­stöðv­ar­innar að ólík­legt sé að inn­brotið hafi verið framið ein­göngu í auðg­un­ar­skyni. Þar segir að end­ur­sölu­mark­aður á mynda­vélum og hljóð­mix­erum geti varla verið svo virkur að inn­brots­þjófarnir fái nema brot af því sem það kost­aði Sam­stöð­ina að byggja upp stúd­íóið. Auk þess sem þrjót­arnir stálu öllu steini létt­ara, eyðilögðu þeir einnig kapla og var gengið svo frá að ólík­legt sé að Sam­stöðin geti hafið útsend­ingar á næst­unni, að því er segir á heima­síðu stöðv­ar­innar.

Ekki fyrstu skemmdarverkin

Skemmd­ar­verkin í nótt voru ekki þau fyrstu í Vor­stjörn­unni, hús­næði Sam­stöðv­ar­innar, Sós­í­alista­flokks­ins og margra félaga­sam­taka sem þar eru til húsa. Fyrir nokkrum mán­uðum voru rúður brotnar í hús­inu og sam­kvæmt heima­síðu Sam­stöðv­ar­innar hefur for­ystu­fólk flokks­ins oft fengið hót­anir um lík­ams­meið­ingar. „Það má allt eins vera að ein­hverjir hafi verið á ferð í nótt sem þola illa rót­tæka sam­fé­lags­um­ræðu eða gagn­rýni á stjórn­völd,“ segir Gunnar Smári.

Hvað gerir Sam­stöðin nú? er spurt á síðu stöðv­ar­innar. „Við erum að melta þetta,“ segir Gunnar Smári. „Ég vildi að ég gæti sagt að við getum byrjað útsend­ingu strax á mánu­dag en ég veit bara ekki hvort við ráðum við það. Sam­stöðin er fátæk og á illa við þessum áföllum. Þau tæki sem voru eyðilögð eða stolið kosta hvert um sig ekki mikið, eru sum gömul og hæpið að við fáum þetta tjón bætt í gegnum trygg­ingar. Og ef ég þekki trygg­inga­fé­lögin rétt myndi það taka okkur vikur, mán­uði og ár.“

Sam­stöðin er eign Alþýðu­fé­lags­ins, sem er félags­skapur þeirra sem greiða eins­konar áskrift að Sam­stöð­inni, frá tvö þús­und krónum á mán­uði (sjá hér: Félaga­skrán­ing Sam­stöðv­ar­innar).

„Ætli við verðum ekki að leita til þeirra sem hafa horft og hlustað á Sam­stöð­ina,“ segir Gunnar Smári. Og bendir á að þau sem vilja hjálpa til við kaup á nýjum tækjum geti lagt inn á reikn­ing Sam­stöðv­ar­innar, banka­númer: 1161-16-201669 Kennitala: 550891-1669

„En best væri nátt­úr­lega að þeir sem brut­ust inn skili tækj­unum,“ bætir Gunnar Smári við. „Við munum glöð taka við þeim og ekki taka eftir hverjir koma með þau.“

Mannlíf náði ekki í Gunnar Smára við gerð frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto