Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Myndband: Kryddlegnar lambalærissneiðar með hrásalati, grilluðum kartöflum og tómatsalsa

Hérna eru lamba­læris­sneið­arnar teknar upp á næsta stig með bragð­góðum krydd­legi og æðis­legu með­læti.

SS-krydd­legið lamba­kjöt er í bragð­góðum krydd­legi og hafa lamba­læris­sneið­arnar verið með vin­sælasta kjöt­inu á grill lands­manna í áraraðir.

Lamba­læris­sneið­arnar koma einnig í hand­hægum umbúðum og þarf aðeins eitt hand­tak til að opna þær, þægi­legra og ein­fald­ara getur það ekki verið.

Með því að kaupa kjötið til­búið í krydd­legi er hægt að nota tím­ann sem spar­ast í elda­mennsk­unni og nostra örlítið meira við með­lætið.

Grill­aðar kart­öflur með stein­selju
fyrir 2-4

400 g kart­öflur að eigin vali
2-3 msk. ólífu­olía
1-2 tsk. sjáv­ar­salt
1 tsk. nýmal­aður svartur pipar
½ hnefa­fylli stein­selja, söxuð gróf­lega

Hitið grill og hafið á háum hita (200°C -240°C). Setjið kart­öfl­urnar beint á grillið en hafið þær ekki beint yfir eld­inum. Grillið kart­öfl­urnar í 20-25 mín. og snúið þeim við reglu­lega. Einnig er hægt að elda kart­öfl­urnar í ofni á 200°C í 30-40 mín. Skerið kart­öfl­urnar gróf­lega niður og setjið þær í skál með ólífu­olíu, sjáv­ar­salti, svörtum pipar og stein­selju. Blandið öllu vel saman. Setjið álp­appír yfir og setjið til hliðar.

Hrásalat
fyrir 2-4

2 msk. ólífu­olía
2 msk. nýkreistur límónu­safi
½ tsk. fiski­sósa
150 g kína­kál, fínt saxað
150 g rom­aine-salat, fínt saxað
½ rauð­laukur, saxaður fínt
3 msk. blað­laukur skor­inn fínt, hvíti og ljós­græni part­ur­inn not­aður
3 msk. kórí­ander, fínt saxað
2 tsk. sesam­fræ, ristuð á þurri pönnu
½ tsk. sjáv­ar­salt

Blandið öllum hrá­efnum saman í skál og bragð­bætið með sjáv­ar­salti og límónusafa eftir smekk.

Tómat­salsa
fyrir 2-4

230 g kirsu­berjatómatar
1 lít­ill laukur, saxaður fínt
1 msk. ólífu­olía
2 msk. maukað chili í krukku, við not­uðum frá Santa Maria
1 hvít­lauks­geiri, saxaður fínt
1 tsk. fiski­sósa
½ -1 tsk. sjáv­ar­salt

Hitið ofn í 200°C með yfir­hita. Setjið tómata, lauk og ólífu­olíu saman í eld­fast mót með álp­appír og blandið vel saman. Setjið undir hit­ann og eldið í 10-15 mín. eða þar til tómat­arnir hafa fengið á sig örlít­inn lit og lauk­ur­inn er orð­inn mjúkur. Hrærið í reglu­lega. Setjið tómat­blönd­una í mat­vinnslu­vél ásamt rest­inni af hrá­efn­unum. Maukið þar til allt hefur sam­lag­ast vel. Setjið í skál og bragð­bætið með salti.

Grill­aðar lamba­læris­sneiðar
fyrir 2-4

700-800 g krydd­legnar lamba­læris­sneiðar frá SS

Takið kjötið úr kæl­inum og látið það ná stofu­hita. Hitið grill og hafið á háum hita. Grillið læris­sneið­arnar í 2-3 mín. á hvorri hlið, eða 5-6 mín. fyrir þykk­ari sneiðar. Takið læris­sneið­arnar af grill­inu og berið fram með með­læt­inu.

Mat­reiðsla / Folda Guð­laugs­dóttir
Stílis­er­ing og rit­stjórn / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Mynda­taka/  Hallur Karlsson og Hákon Davíð Björns­son
Klipping / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni