Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Kiddi Kanína dæmdur fyrir fjölda brota

Braut meðal ann­ars vopna­lög

Var tekinn við Toyota-bílasölu
Var tek­inn við Toyota-bíla­sölu Mynd: Ja.is/Skjáskot

Athafna­mað­ur­inn Kristinn Ka. Nína Sig­ríð­ar­son, betur þekktur sem Kiddi Kanína, hefur verið dæmdur í sjö mán­aða fang­elsi í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands fyrir ítrekuð brot gegn umferð­ar­lögum, fíkni­efna­lögum og vopna­lögum. Frestað var fulln­ustu fjög­urra mán­aða af refs­ing­unni til tveggja ára gegn almennu skil­orði en jafn­framt var ævi­löng svipt­ing öku­réttar hans áréttuð.

Kiddi ját­aði ský­laust öll brot sín fyrir dómi. Málið tók ann­ars vegar til akst­urs undir áhrifum fíkni­efna og sviptur öku­rétti í jan­úar á þessu ári og hins vegar fíkni­efna- og vopna­laga­brota sem framin voru í mars 2025.

Samkvæmt dómnum var Kiddi stöðv­aður við akstur á Suð­ur­lands­vegi í Árborg 4. jan­úar 2026. Hann var þá sviptur öku­rétti og óhæfur til akst­urs vegna áhrifa kanna­bis­efna. Í blóð­sýni mæld­ist tetra­hýdrókannabínól (THC) 6,6 nanógrömm í milli­lítra.

Við rann­sókn lög­reglu vegna ann­ars máls fund­ust sam­tals rúm­lega 51 gramm af marí­húana, einn millí­lítri af kanna­bis­blönd­uðum vökva, 15 kanna­bis­plöntur og úða­vopn. Fíkni­efnin fund­ust bæði í bif­reið Kidda og við hús­leit á heim­ili hans.

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn sér­stak­lega til þess að Kiddi hefði í fjórða sinn verið sak­felldur fyrir akstur undir áhrifum fíkni­efna og í annað sinn fyrir akstur sviptur öku­rétti. Hann á jafn­framt nokkurn saka­feril að baki, meðal ann­ars vegna sam­bæri­legra brota, og hafði áður verið sviptur öku­rétti ævi­langt.

Dómurinn taldi jafn­framt að nýjasta umferð­ar­laga­brotið hefði rofið skil­orð eldri dóms. Þrátt fyrir það var litið til þess að Kiddi ját­aði brotin ský­laust og var það metið honum til máls­bóta. Auk fang­els­is­refs­ing­ar­innar voru fíkni­efnin og úða­vopnið gerð upp­tæk og honum gert að greiða rúm­lega 380 þús­und krónur í sak­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Innlent

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Nefnd um eftirlit með lögreglu hafði ákveðið að aðhafast ekki frekar.
Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana