Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Gorbatsjov er látinn: Illugi og Gunnar Smári minnast hans

Illugi Jökulsson, blaðamaður, Mikhaíl Gorbatsjov og Gunnar Smári Egilsson. Samsett mynd.
Illugi Jök­uls­son, blaða­maður, Mikhaíl Gor­bat­sjov og Gunnar Smári Egilsson. Samsett mynd.

Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sovét­ríkjanna, er látinn 91 árs að aldri. Gorbatsjov hafði verið að glíma við veikindi í langan tíma og lést á spítala í Moskvu­borg í dag.

Fjölmiðla­maðurinn Illugi Gunnarsson skrifar pistil vegna andlátsins. En hann segist hafa verið þakklátur fyrir það að Gorbatsjev hafi verið við völd frekar en einhver annar þegar Sovíetríkin féllu.

Illugi Jök­uls­son, blaða­maður.

„Gorbatsjev er dáinn, 91 árs. — Hann hefur lengi verið í meiri metum á Vestur­löndum en heima í Rússlandi. Vesturlanda­menn meta hann mikils fyrir manneskjulegt andlitið sem hann færði Sovét­ríkjunum á enda­sprettinum og þó enn frekar fyrir að hafa ekki reynt að streytast gegn hruninu með vopna­valdi af einhverju tagi. Það hefði endað með ósköpum, ægilegum ósköpum.

Austur í Rússlandi hafði hrunið hins vegar í för með sér svo mikla erfið­leika, sem ekki er búið að bíta úr nálinni með enn, að þeir sem kenna honum beinlínis um hrunið hafa ímugust á honum. Á sínum tíma hvarflaði ekki að neinum (held ég) að Sovét­ríkin gætu hrunið. En eftir á að hyggja var það eflaust óhjákvæmilegt. Og þá var vissulega betra, ójá, svo miklu betra að hann væri við stjórnvölinn en ýmsir aðrir.“

Reagan og Gorbatsjov í Höfða í lok kalda stríðsins

Fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna Ronald Reagan og Mikaíl Gor­bat­sjov, fyrr­ver­andi for­ystu­maður kommunísta­flokks­ins í Rúss­landi í Höfða, 11. októ­ber 1986.

Gorbatsjov kom hingað til lands árið 1986 og fundaði með Ronald Reagan, þáverandi forseta Banda­ríkjanna, í Höfða vegna Kalda stríðsins. Fundurinn er einn sá þekktasti í sögunni en lítið kom upp úr honum. Leið­togarnir komust ansi nálægt því að útiloka notkun kjarnorku­vopna í stríðinu en tókst ekki að semja um það í Reykjavík.

Kalda stríðinu lauk árið 1991 þegar Sovét­ríkin féllu en árið áður hafði Gorbatsjov fengið Friðar­verðlaun Nóbels fyrir hlutverk sitt í að bæta samskipti vestursins og austursins.

Raissa Gor­bat­sjov, Míkhaíl Gor­bat­sjov og Vigdís Finn­boga­dóttir í Höfða árið 1986.

„Gorbatsjov ætti að verða verndar­dýrlingur draumóra­fólks í stjórn­málum,“ segir Gunnar Smári Egilsson í færslu í kjölfar frétta um andlát hans. Hér má lesa færslu Gunnars í heild sinni:

Gunnar Smári Egilsson, með­limur í Sosí­alista­flokki Íslands.

„Gorbatsjov er eini aðal­ritari sovéska kommúnista­flokksins sem lék í auglýsingu fyrir töskur Louis Vuitton. Mér finnst þessi mynd táknræn fyrir þá harm­sögupersónu sögunnar sem þessi maður varð. Kannski verður einhvern tímann samin ópera um Gorbatsjov, John Adams ætti að geta kastað í eina. Jeltsín gæti orðið comic relief, veltandi um sviðið fullur milli þess sem hann reigir sig eins og hani. Gorbatsjov væri hins vegar djúpur bassi í einræðum um glasnost og perestrojku, sem enginn almennilega áttar sig á hvað er. Gorbatsjov kenndi okkur að það er ekki hægt að upphugsa lausnir á samfélagi sem hefur ekki í sér neinar stofnanir eða samtök, engan vettvang til að láta hagsmuni og hugmyndir takast á. Samfélags­mótunin er ekki samkeppni um hver er með snjöllustu hugmyndina. Hún er niður­staða átaka sem sýnir hver hafa mesta aflið. Gorbatsjov ætti að verða verndar­dýrlingur draumóra­fólks í stjórn­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi