Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Einelti grasserar enn hjá Vinnueftirlitinu – Starfsmannaveltan með hæsta móti

Vinnueftirlit ríkisins
Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins

Ófremd­ar­á­stand virð­ist ríkja hjá Vinnu­eft­ir­lit­inu en ein­elti og kyn­ferð­is­leg áreitni mælist þar mun hærra en með­al­tal ann­arra stofn­anna rík­is­ins.

Könnunin Stofnun árs­ins 2022 á vegum Sameykis leiddi í ljós að

13 pró­sent starfs­manna Vinnu­eft­ir­lits­ins höfðu orðið fyrir ein­elti en 7 pró­sent er með­al­talið fyrir allar með­al­stórar stofn­anir í könn­unni. Alls höfðu 10 pró­sent starfs­manna Vinnu­eft­ir­lits­ins orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni en með­al­talið er tvö pró­sent. Þá urðu 11 pró­ent fyrir kyn­bund­inni áreitni en með­a­talið eru þrjú pró­sent. Sex pró­sent starfs­manna Vinnu­eft­ir­lits­ins urðu fyrir ofbeldi en það er sami fjöldi að með­al­tali hjá öðrum með­al­stórum stofn­unum.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur starfs­manna­velta Vinnu­eft­ir­lits­ins verið mikil frá árinu 2019 en Ásmundur Einar Daðason fé­lags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra skip­aði Hönnu Sigríði Gunn­steind­óttur sem for­stjóra Vinnu­eft­ir­lits­ins í lok árs 2018 en skipun hennar var umdeild á sínum tíma. Stjórn­un­ar­hættir Hönnu hafa einnig þótt umdeildir en árið 2019 sögðu fjöl­miðlar frá því að þeir starfs­menn sem kvört­uðu undan hegðun stjórn­enda gagn­vart starfs­fólki stofn­un­ar­innar, hefðu verið skikk­aðir í tíma hjá sál­fræð­ingi. Samkvæmt heim­ildum Mannlíf eru starfs­mönnum enn bent á sál­fræð­ing ef þeir kvarta undan stjórn­endum. Stjórn­endur geri það þó í minna mæli en áður.

Þá hefur Mannlíf eftir heim­ild­ar­mönnum sínum að reglu­lega séu gerðar kann­anir meðal starfs­manna Vinnu­eft­ir­lits­ins um líðan fólks en að ef fólk seg­ist óánægt eða kvarti yfir ein­hverju, sé það kallað á fund þar sem gert er lítið úr kvörtun þeirra og því boðið að tala við sál­fræð­ing, líkt og segir frá hér að ofan. „Ég veit um starfs­menn sem eru farnir að svara þessum könn­unum jákvætt, þvert á það sem þeim í raun finnst, bara til að losna við áreiti stjórn­enda,“ sagði einn heim­ild­ar­mann­anna.

Starfs­manna­velta stofn­un­ar­innar hefur verið með hærra móti síð­ustu ár en nokkur dæmi eru um að fólk hafi farið í veik­inda­leyfi vegna ein­eltis eða kuln­unar í starfi hjá Vinnu­eft­ir­lit­inu.

Vinnu­eft­ir­litið ber ábyrgð

á mála­flokknum er varðar aðgerðir gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bundnu áreitni og ofbeldi á vinnu­stöðum sam­kvæmt reglu­gerð nr. 1009/2015.

Mannlíf sendi Vinnu­eft­ir­lit­inu spurn­ingar er varðar ein­elti og nákvæmar tölur yfir starfs­manna­veltu stofn­un­ar­innar í gær­morgun en hefur ekki enn fengið svar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar